Fiskur og ferskmeti fara vel saman: Grafinn lax í rauðrófum

Morgunblaðið Elín Albertsdóttir elal@simnet.is

Ferskar rauðrófur eru ákaflega hollar og góðar. Margir nota þær í heilsudrykki til að fá úr þeim allt það vítamín sem þær innihalda. Rauðrófur gefa sterkan lit og þær henta því vel til að lita mat. Ef þú vilt fá rauðan fallegan lit á reyktan lax má leggja hann í „bleyti“ í rauðrófusafa og marinera hann. Skemmtilegt ráð til að gera matardiskinn litríkan.

Hér er uppskrift að ferskum laxi sem er grafinn í rauðrófum.

1 laxaflak

150 g sykur

100 g gróft salt

3 ferskar rauðrófur, rifnar niður með rifjárni

3 appelsínur, rifinn börkur og safinn

Graslaukur

Nokkur Allrahanda fræ (allspice)

1) Laxaflakið á að vera beinlaust og roðið hreisturslaust.

2) Dreifið sykri og salti yfir fiskinn. Setjið önnur hráefni í botninn á bakka og leggið fiskinn ofan á blönduna, roðið á að snúa upp. Marinerið í 8-12 tíma.

3) Takið flakið úr blöndunni og skerið það í mjög fínar roðlausar sneiðar, eins og graflax er skorinn. Leggið fallega á disk og vætið með sinneps- og límónu vinaigrette.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is