Biksvartur og bragðmikill
Íslenskir bjóráhugamenn taka eflaust gleði sína á Bóndadag, 20. janúar nk., en þá kemur á markað nýr íslenskur bjór og fyrsti árgangsbjórinn. Sá nefnist Surtur og er að sögn bruggmeistara biksvartur og bragðmikill.
Surtur er af tegundinni Imperial stout en fyrir er á markaði annar slíkur íslenskur bjór; Lava frá Ölvisholti brugghúsi. Þeir eiga ýmislegt annað sameiginlegt en að vera af sömu bjórtegund, því sami bruggmeistari er að baki þeim báðum og vinnuheitið yfir Lava var Surtur. Bruggmeistarinn, Valgeir Valgeirsson, var áður hjá Ölvisholti en færði sig um set og er nú annar bruggmeistara Borgar brugghúss sem segja má að sé tilraunabrugghús Ölgerðarinnar.
En þó svo Surtur og Lava eigi þetta sameiginlegt þvertekur Valgeir fyrir að þeir séu sami bjórinn eða svipaðir. Nafnið hafi hann gengið með í maganum og þannig hist á að báðir bruggmeistararnir hafi verið með það í huga fyrir bjór af tegundinni Imperial stout. Þá sé nóg af uppskriftum hægt að þróa án þess að nokkuð þurfi að afrita.
Tólf prósent að styrkleika
Imperial stout-bjórar eru ekki allra. Þeir eru afar bragðmiklir og innihalda mikið alkóhól. Þannig er styrkleikinn í Lava 9,7% og í Surti heil tólf prósent. Valgeir segir þó að ekki sé mikið alkóhólbragð af Surti. „Þegar maður gerir svona sterka bjóra vakir ekki fyrir manni að hafa alkóhólmagnið mikið heldur að þeir séu bragðmiklir. Áfengismagnið er í raun aukaafurð sem leiðir af því hversu mikið hráefni er notað.“
Varla er hægt að tala um að markaður hér á landi sé stór fyrir bjór af þessari tegund. Um sérvöru sé að ræða og segir Valgeir að upphaflega hafi Ölvisholt ekki haft í hyggju að setja Lava á íslenskan markað. „Vegna fyrirspurna frá ÁTVR ákváðum við að reyna að setja hann á markað en það skilaði sér svo sem ekki í mikilli sölu.“ Hann segir að Borg framleiði Surt einnig í mjög takmörkuðu magni, en það sé einnig vegna þess að um er að ræða árstíðabundinn bjór, þorrabjór.
Árgangsmerktur Surtur
Samkvæmt reglum Vínbúða ÁTVR er sérstakt sölutímabil fyrir árstíðabundna bjóra, þ.e. jólabjóra, þorrabjóra og páskabjóra. Óseldir bjórar eru teknir úr hillum eftir að tímabilinu lýkur. En þó svo sölutímabilinu ljúki er ekki þar með sagt að neyslutímabilinu ljúki. „Þetta er svoleiðis bjór að hann á eftir að þroskast í flöskunni. Engin regla er yfir það hversu lengi má geyma bjór en við erum hins vegar lagalega skyldir til að setja stimpil á flöskurnar með síðasta neysludegi,“ segir Valgeir.
Valgeir segir erfitt að segja til um hvenær bjórinn nái hámarks bragðgæðum og í raun gildi sömu lögmál og með gott rauðvín. Af þessum sökum verður Surtur árgangsmerktur og er það von Borgar og Valgeirs að bjóráhugamenn geymi nokkrar flöskur, t.d. í bjórkjallara sínum. Auk þess er ráðgert að breyta uppskriftinni að Surti á hverju ári. Alltaf verði um Imperial stout-bjór að ræða en engar reglur um hversu sterkur hann á að vera eða hvernig uppskriftin er hverju sinni. „Við sjáum fyrir okkur að bjóráhugamenn geymi sér Surt og geti smakkað nokkra árganga á einu kvöldi.“
Eyðir heiminum með eldi
Nafnið Surtur, sem merkir hinn svarti, er komið úr goðafræðinni. Á vefsvæði Ásatrúarfélagsins segir að Surtur sé eldjötunn sem fer um með logandi sverði í Ragnarökum. Hann sigrar öll goðin og eyðir heiminum með eldi sem nefnist Surtarlogi. Á alfræðivefnum Wikipedia segir að Surtur komi úr Múspellsheimi og ríði um jörðina ásamt Múspellssonum.
Einnig er komið inn á það, að hraunhellirinn Surtshellir, lengsti hellir landsins, sé nefndur í höfuðið á Surti.
























