Súperhollir heilsuréttir frá Valentínu
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
Hjónin Valentína Björnsdóttir og Karl Eiríksson festu kaup á veitingastaðnum Krúsku fyrir ári. Þau eru þó engir nýgræðingar í heilsubransanum en fyrir ráku þau hollustufyrirtækið Móðir náttúru. „Það hafði alltaf blundað í okkur að reka okkar eigin stað, og þegar jafngott tækifæri rak á fjörur okkar gátum við ekki sleppt því,“ segir Valentína um tilurð þess að þau tóku við rekstri Krúsku. „Hér bjóðum við holla og bragðgóða grænmetisrétti, kjúklingarétti, gæðakaffi og girnilegar kökur ásamt nýbökuðu brauði, ferskum söfum og fleira góðgæti.“ Áhrifin í matreiðslunni segir Valentína vera frá öllum heimshornum, enda sé eldhúsið þeirra sannkallað heimseldhús. „Fólk hefur tekið okkur tveim höndum og ætlum við að koma til móts við gesti okkar með því að hafa opið á laugardögum frá og með janúar, og ætlum að kalla þá ljúfa laugardaga.“ Þar sem flestir vilja fá sér eitthvað létt en um leið saðsamt eftir átveislur desembermánaðar ákvað Valentína að gefa lesendum Heilsublaðsins þrjár girnilegar uppskriftir að bragðmiklum og hollum pottréttum.
„Þetta eru uppskriftir að 3 ólíkum grænmetisréttum sem hægt er að bera fram eina sér með hýðishrísgrjónum og fersku salati , eða bæta útí þá kjúklingi eða öðru kjöti“ segir Valentína.
Chilipottréttur
½ dl olía
1 stór laukur, skorinn í sneiðar
2 fínt saxaðir hvítlauksgeirar
2 msk tómatpurré
3 ds niðursoðnir tómatar
2 sellerístilkar í sneiðum
1 msk þurrkað oregano
1 msk malað cummen
1 ½ tsk paprikuduft
1 msk þurrkað basil
1 tsk chilli duft.
1 ds soðnar nýrnabaunir.
50 gr suðusúkkulaði
3 gulrætur í bitum
150 gr sætar kartöflur skornar í bita.
Safi úr ½ sítrónu
¼ b ferskt kóríander
Salt eftir smekk.
Aðferð:Hitið olíu í potti og setjið lauk og hvítlauk útí í. Látið malla í pottinum með loki við miðlungshita í ca 15 mín.
Bætið útí kryddi, tómat-puré, tómötum og selleríi, látið malla í ca 10 mín í viðbót. Setjið soðnar baunir útí og restina af grænmetinu ásamt súkkulaðinu. Látið malla saman í 20 mín.
Að síðustu er sett útí ferskt kóriander og sítrónusafi.
Marokkóskur pottréttur
1 eggaldin skorið í bita
1 rauð paprika í sneiðum
penslið með oliu og bakið í ofni 180° ca 10-15 min
Olía
1 hótellaukur sneiddur
2 hvítlauksrif fínt skorin
½ fennel sneitt langsum, ekki of þunnt.
2 tsk tómatpúré
1ds niðursoðnir tómatar
1dl appelsínusafi
1 b soðnar kjúklingabaunir
1 grænmetisteningur
2 msk sítrónusafi
¼ tsk cummen
¼ tsk kanel
¼ tsk engiferduft
10 þurrkaðar apríkósur, skornar í bita.
svartur pipar,
salt ef þarf.
2 msk saxað koríander.
Mýkið lauk og hvítlauk í potti, bætið út í fennel og látið það mýkjast aðeins.
Setjið allt nema ferskan kóriander, eggaldin og papriku út í pottinn og látið malla saman í 30 mín.
Að lokum er eggaldin, paprika og kóriander sett útí.
Þessi pottréttur er ættaður frá veitingahúsinu Leons í London
Blómkáls-pottréttur
Fyrir 6
1 laukur sneiddur
2 gulrætur í bitum
2 msk olía
1 raudur chilli
2 þumlungar engifer
5 hvitlauksgeirar
1 tsk madras curry
1 tsk turmeric
1 sæt kartafla, skorin í teninga
5 msk muldar möndlur
handfylli af rúsínum
1 blómkálshöfuð skorið í stóra bita
400ml kókosmjólk
150g frosnar grænar baunir
safi ur ½ sítrónu
Lúka af fersku coriander
salt
Aðferð
Steikið lauk, hvítlauk , engifer, gulrætur, og sætar kartöflur í stórum potti í ca 10 min.
Bætið við kryddi og kókosmjólk, svo möndlum og rúsínum, látið suðuna koma upp, lækkið hitan og látið malla í ca 10 mín. og að síðustu er blómkálið og baunirnar og kóríanderið bætt útí og látið malla í ca 5 min í viðbót.
Hér eru 3 góðar salatsósur sem passa allar vel með pottréttunum.
Engifer soja dressing.
½ bolli olífuolia
3 msk góð sojasósa
½ bolli eplasafi
4 cm engifer
½ hvítlauksrif
3 msk ferskt coriander
½ tsk ferskt chilli
3 msk lime safi
½ epli
salt og svartur pipar
Allt sett í mixer og þeytt vel saman.
Melónu salsa
1 bolli vatnsmelóna skorin í bita
2 vorlaukar sneiddir fínt
½ bolli kókosflögur
½ cumminfræ
1 msk engifer saxað
Sítrónusafi
Salt
Pipar
Ristið cummenfræ og kókosflögur á heitri pönnu og passið vel að það brenni ekki. Öllu blandað saman.
Avokadómús
2 velþroskuð avocado
1 appelsína afhýdd og steinhreinsuð
2 lúkur ruccola
2 msk sítrónusafi
salt og svartur pipar.
Öllu blandað vel saman í matvinnsluvél.
























