Bollakökur með vanillukremi

Mynd 1 af 3
Bollakökur með vanillukremi. mbl.is/Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir var í bökunarstuði um helgina og töfraði fram þessar girnilegu kökur.

„Um helgina þá bakaði ég vanillubollakökur og prufaði nýtt krem. Karamellukrem, sem er að mínu mati eitt það allra yndislegasta. Þið finnið uppskrift af vanillubollakökum í eldri færslum hjá mér,“ segir hún á bloggi sínu.

Það þarf að byrja að laga kremið deginum áður en við ætlum að nota það.

Karamellukrem

400 gr. karamellur (ég notaði í þetta sinn frekar stórar sem fást m.a. í sælgætisrekkanum í Shell og í Krónunni)

6 dl rjómi

Aðferð

Ósköp einföld aðferð. Setjum rjóma og karamellur í pott. Hitum við vægan hita og hrærum vel í, eftir nokkrar mínútur verður þetta orðið að dásamlegri sósu (það er náttúrlega súper að nota þessa sósu ofan á ís með ferskum ávöxtum, mmm en það er önnur saga, nú einbeitum við okkur að kreminu).

Svo færum við sósuna yfir í skál og setjum inn í ísskáp yfir nótt.

Næsta dag þá setjum við kremið í hrærivélina og hrærum í um það bil 3-4 mínútur.

Þá er kremið tilbúið og smakkast dásamlega.

Smá dúllerí að lokum. Þegar kremið var komið á kökurnar þá fannst mér eitthvað vanta, þannig ég bræddi fáeinar karamellur til og skreytti kökurnar með sósunni.

Það gaf kökunum afskaplega fallegan svip.

Mæli með að þið prufið.

Endilega like-ið og fylgist með blogginu á Facebook.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is