Ljúffengt heimatilbúið súkkulaði

Mynd 1 af 2
mbl.is/Marta María

Þegar löngunin í sætindi kemur upp er ekki verra að eiga eitthvað gott í frystinum. Þetta er súpereinfalt. Það tekur ekki nema tíu mínútur að útbúa heimatilbúið súkkulaði sem er án allra aukefna. Hráfæðisskvísan Kate Magic kenndi mér að gera svipað súkkulaði í haust en hér kemur mun einfaldari útgáfa.

1 dl kakósmjör

1 dl hreint lífrænt kakóduft

3 msk kakó nibs

1/2 dl hlynsíróp

1/2 tsk maldon salt

1/2 tsk lífrænt vanilluduft

Bræðið kakósmjörið yfir vatnsbaði. Setjið kakó, kakó nibs, maldon salt, vanilluduft og hlynsíróp í skál og hellið kakósmjörinu saman við og hrærið. Setjið í lítil sílikonform og setjið inn í frysti í nokkra klukkutíma.

Þegar súkkulaðilöngunin kemur upp er sniðugt að fá sér einn mola.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is