Fer með hópa í sælkera- og gönguferðir til Ítalíu
Elín Albertsdóttir elal@simnet.is
á þeim tíma sem ég hóf þessar ferðir voru þær nýjung. Ég hef m.a. farið með hópa til Toskana á Ítalíu í tólf ár. Það var undarleg tilviljun þegar ég kynntist síðan nýjum samstarfsmönnum þar,“ segir Steinunn sem núna fer með ferðamenn á afskekktan stað í Garfagnana-héraði norðvestur af Toskana, en það er skógi vaxið fjalllendi.
„Ég fór ásamt samstarfsmanni mínum í óundirbúna ferð um þetta svæði til að skoða aðstæður. Við ókum yfir fjöll og dali en rákumst ekki á nokkurn mann sem talaði ensku. Stuttu síðar hittum við mann sem var að afferma bíl og mér datt í hug að athuga hvort hann væri mælandi á enska tungu sem reyndist vera. Auk þess talaði hann dönsku. Svo skemmtilega vildi til að hann hafði lengi dreymt um að skipuleggja gönguferðir um þetta svæði og sendi okkur til vinahjóna sem reka lítið fjallahótel skammt frá. Við settumst síðan niður með þessu fólki og skipulögðum ferðir,“ útskýrir Steinunn. Hótelið er í 800 metra hæð. Sú hugmynd kom upp að búa til sælkera- og gönguferðir og það hefur lukkast mjög vel. Ferðahópurinn skiptist í tvennt, annar helmingurinn er í eldhúsinu og sér um allan mat á meðan hinn fer í gönguferðir og síðan skipta hóparnir um hlutverk. Við gerum eigið pasta og tínum jurtir í nágrenninu og búum til kryddolíu sem við tökum með heim.“
Ferskleiki skiptir máli
Steinunn segist vera matgæðingur þótt hún eldi ekki alla daga. „Ég hef mjög gaman af því að bjóða gestum í mat en þar sem ég bý ein er ég löt við að elda fyrir mig. Ég borða fisk í vinnunni en fæ mér eitthvað fljótlegt á kvöldin. Ég fer sjaldan út að borða en reyni að finna skemmtilegar uppskriftir, þó aðallega til að skoða hráefnisnotkun. Ég borða sjaldan kjöt og kaupi helst ekki unnar vörur. Ferskleiki skiptir mig máli og hollt brauð. Stundum tek ég mig til og baka brauð en það kemur í törnum,“ segir hún.
Steinunn segist gera flest stærri innkaup í Bónus en fer einnig í Kjöthöllina á Háaleitisbraut sem hún segir að sé sín hverfisverslun. „Ég vil styðja kaupmanninn á horninu,“ segir hún.
Vín og matargerð
Það myndast ákaflega skemmtileg stemning í matarferðunum og ég hef gaman af því þegar íslenskar húsmæður segja frá því að þær hafi nú oft bakað torta della nonna sem er þekkt ítölsk sítrónukaka. Í sælkeraferðinni eru ekki gerðar kröfur um að fólk sé vant göngufólk. Þetta er ekki erfitt svæði en allir verða samt að vera góðir til gangs. Á kvöldin eru kynnt vín og matargerð úr héraðinu. Sveitin er afskekkt og hefur verndast frá iðnvæðingunni.“
Auk þess að fara í gönguferðir starfar hún hjá RÚV. Steinunn er með þátt á laugardögum sem nefnist Út um græna grundu en hann fjallar um útivist. Þáttinn hefur hún verið með í sextán ár á Rás 1 sem þykir dágóður tími. Steinunn getur því sameinað áhugamál og vinnu. Hægt er að skoða ferðirnar á síðunni gonguhrolfur.is.
Steinunn ætlar að gefa lesendum uppskrift að tyrknesku gulrótarsalati sem hún kynntist á ferðum sínum.
Gulrótarsalat
frá Tyrklandi
5 gulrætur
300 g hrein jógurt
2 hvítlauksrif, pressuð
2 matskeiðar majónes
smáolía
Gulræturnar rifnar gróft á rifjárni og síðan hitaðar stutta stund á pönnu.
Þegar gulæturnar hafa kólnað svolítið er þeim hrært saman við jógurt, majónes, olíu og hvítlauk.
Borið fram með grænmeti, brauði eða fiski.
























