Nói Síríus gerir góða hluti í East Village í New York
Í New York er nú hægt að fá búðing og ýmsa eftirrétti úr íslensku súkkulaði frá Nóa Síríus en nýlega var opnuð verslun í East Village sem notar súkkulaðið í rétti sína. Puddin´ by Clio er eins konar kaffihús sem sérhæfir sig í sælkera-eftirréttum en viðskiptavinir geta valið um ýmsar tegundir búðinga og bætt við ávöxtum, kurli og sósum.
Puddin´ by Clio er fjölskyldufyrirtæki en Clio Goodman sjálf er kokkur og hefur þróað búðinginn sinn í mörg ár með tilheyrandi súkkulaðiprófunum. Clio kynntist íslenska súkkulaðinu í verslunum Whole Foods Market, en þar hefur súkkulaðið frá Nóa Síríus verið fáanlegt um nokkurt skeið. Í kjölfarið hafði hún samband við Nóa og fór svo að hún valdi 70% konsum súkkulaðið sem uppistöðu í rétti sína.
„Clio Goodman hafði samband við okkur að fyrra bragði og lofaði íslenska súkkulaðið. Henni fannst 70% konsum súkkulaðið vera það besta sem hún hefði prófað í búðingana sína. Kaffihúsið hennar hefur fengið frábærar viðtökur og dóma og við erum mjög ánægð með þetta samstarf,“ segir Heimir Már Helgason hjá Nóa Síríus.
























