Kitschfríður skorar á frú Sigríði Löve
Frú Kitschfríður Kvaran lyfti annarri augabrúninni í dömulegri forundran í síðasta saumaklúbbi þegar Gógó Badda tjáði henni, með munninn fullan af lekkeru heimabakkelsi, að hafið hefði göngu sína þáttur á Stöð tvö með nafninu Húsráð frú Sigríðar Löve. Um er að ræða innslög í þátt Kalla Berndsen.
„Agalega skrýtinn þátturinn hjá honum Kalla Bernd, þar sem hann kennir konunum að klæða af sér kílóin í staðinn fyrir að fara bara á gaslega góðan slankekúr! En það hafa nú auðvitað ekki allar dömur sama sjálfsagann og hún frú Kitschfríður. Né sömu meðfæddu smekkvísina,“ segir frú Kitschfríður hneyksluð.
Frú Kitschfríður óttast þó ekki samkeppnina, enda landskunn fyrirmyndarhúsmóðir sem hefur nælonsokkaklædda hælana langt framar tám annarra og minni spákvenna í húshaldinu. „Kann frú Sigríður Löve til dæmis að baka nákvæma eftirlíkingu af Hallgrímskirkju úr piparkökudeigi? Heima hjá frú Kitschfríði er heldur engin þörf fyrir dömur á að hlaupa að næsta spegli til að varalita sig, þær geta einfaldlega speglað sig í gólfunum,“ segir hún og brosir.
En vandamálið er auðleyst í huga frú Kitschfríðar. „Ég skora frú Sigríði Löve hér með á hólm í brauðtertuskreytingaeinvígi og þá skulum við bara sjá hvor okkar hefur masterað majónesið. Og ef svo agalega ólíklega skyldi vilja til að þörf væri á bráðabana, yrði ég nú ekki lengi að drekka hana undir eldhúsborðið í sérríslammkeppni,“ segir hún ákveðin.
























