Innkaupavenjur breyttust eftir hrunið

Mynd 1 af 2
Elín Hirst. Ómar Óskarsson
Morgunblaðið Elín Albertsdóttir elal@simnet.is

Elín segir að það séu konur í margvíslegum stöðum sem sæki námskeiðin, m.a. lögfræðingar, bankamenn, læknar, prestar og verkfræðingar. „Þetta eru konur sem þurfa starfs sín vegna að koma fram opinberlega og vilja bæta sig á þeim vettvangi,“ segir hún. „Ég vonast til að konur verði sýnilegri í fréttum í framhaldinu en námskeiðunum hefur verið afar vel tekið.“

Þegar Elín er spurð hvort hún hafi ánægju af því að stússa í eldhúsinu og búa til mat, svarar hún: „Mér hefur farið mjög fram með árunum. Áhuginn hefur aukist og ég legg því meiri alúð við eldamennskuna. Árangurinn skilar sér í betri mat,“ greinir hún frá. „Við hjónin skiptum eldamennskunni með okkur. Friðrik er flinkur kokkur og miklu betri en ég. Hann sér um jólamatinn og annan fínni mat. Friðrik hefur alltaf verið mjög uppfinningasamur í eldhúsinu og hefur gaman af því að prófa nýjungar.“

Elín er gift Friðriki Friðrikssyni, sjónvarpsstjóra Skjásins, og þau eiga tvo uppkomna syni, tengdadætur og eitt barnabarn. Elín minnist þess þegar synirnir voru yngri þá hringdu þeir gjarnan fyrri hluta dags til að forvitnast um hvað yrði í kvöldmat en ekki síður hver myndi elda. „Ef svarið var pabbi þá fann ég að það var meiri spenningur fyrir því heldur en ef ég ætlaði að kokka. Það kom fyrir að þeir sögðust vera uppteknir á matmálstíma ef ég ætlaði að elda,“ útskýrir Elín og hlær. „En þetta hefur breyst mikið. Ég var líka oft að vinna til átta á kvöldin sem setti strik í reikninginn. Friðrik er vanur mjög góðum mat heiman frá sér og það hefur trúlega kveikt áhuga hjá honum. Mamma var sömuleiðis góður kokkur en ég var ekki eins áhugasöm um matargerðina.“

Elín segist vera hrifin af sterkum mat og útbýr gjarnan indverska eða arabíska rétti. „Ég er mikið fyrir indverskt krydd. Áður var ég töluvert að gera ítalska rétti en nú vil ég hafa þá sterkari,“ segir hún. Þau hjónin fóru á námskeið hjá Yesmine Olsson sem hún segir að hafi verið ákaflega lærdómsríkt. „Ég fylgist líka vel með uppskriftum sem birtast í blöðum. Nú hef ég meiri tíma til að prófa mig áfram og hef verið að ná góðum tökum á þessu.“

Hún segist ekki vera dugleg að halda matarboð en fjölskyldan borðar þó alltaf saman á sunnudögum. Þá koma synirnir og fjölskyldur þeirra í mat. „Við borðum sjaldan á veitingahúsum en reynum að elda góðan mat heima um helgar.“

Elín segist gera flest innkaup í Krónunni á Granda en sjálf býr hún á Seltjarnarnesi. „Ég er ánægð með þá búð því vöruúrval er mjög gott, ferskt grænmeti og ávextir. Innkaupavenjur mínar hafa breyst mikið eftir hrunið en ég kaupi núna bara það sem vantar. Ég reyni að vera hagsýn og velti fyrir mér verði. Ég var ekki mikil fiskmanneskja en núna vil ég hafa hann tvisvar í viku,“ segir Elín sem ætlar að gefa lesendum uppskrift að góðum, fljótlegum og ódýrum hversdagsmat. Eldunartími er 20 mínútur og rétturinn er fyrir fjóra.

Túnfiskspagettí

Best er að nota ferskan túnfisk en oftast nota ég tvær dósir af niðursoðnum túnfiski hversdags.

4 hvítlauksrif

1-2 rauðlaukar

1 chili-pipar (passa að þetta getur orðið of sterkt ef öll fræin eru sett í réttinn)

hálf paprika

4 (u.þ.b.) vorlaukar með stönglum og blöðum

smábiti af engifer

2 litlar krukkur rautt pestó

salt og pipar

spagettí

Grænmetið steikt á vægum hita og látið malla, ekki of lengi samt.

Eftir að grænmetið er orðið mjúkt er túnfiski og rauðu pestói bætt við ásamt meiri olíu. Salt og pipar ef vill.

Venjulegt spagettí er soðið í 8 mínútur.

Borið fram með fersku, grófu snittubrauði og parmesan osti sem er ómissandi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is