Eldhúshnífarnir gerast ekki smartari
Það er ekki oft sem fólk fær hjartastopp vegna eldhúshnífa en það getur þó gerst. Litríku eldhúshnífarnir frá PureKomachi eru einfaldlega svo fagrir að það er ekki annað hægt en að langa til að skera niður allt heimsins grænmeti, kjöt og fisk þegar þeir eru annars vegar. Hnífarnir hafa verið töluvert vinsælir hjá sjónvarpskokkum enda koma þeir sérstaklega vel út í mynd. Hrefna Sætran lætur sitt ekki eftir liggja og notar hnífana í nýjustu þáttaröð sinni af Matarklúbbnum sem sýndir verða á Skjá Einum á næstunni.
„Þessir hnífar eru algjör snilld til að hafa heima. Þeir eru á mjög góðu verði og líka svo flottir á litinn. Hnífarnir eru fyrir alla fjölskylduna og litirnir eru bara til að aðgreina þá. Mismunandi hnífur fyrir mismunandi verk hverju sinni,“ segir Hrefna Sætran.
PureKomachi-hnífarnir eru japönsk snilld sem sameinar fallega hönnun, litagleði og notagildi. Þeir henta jafnt örvhentum sem rétthentum og hefur hver tegund sinn lit. T.d. er brauðhnífurinn fjólublár. Hnífarnir eru úr ryðfríu stáli.
Þrátt fyrir mikla litagleði eru þetta alls ekki aðeins stelpuhnífar enda flugbeittir og því alvöru verkfæri fyrir alla ástríðukokka.
























