Frönsk vínstofa opnuð á Laugavegi

Mynd 1 af 5
David Bensow. LJósmyndari/Sigurjón Ragnar

Á dögunum var opnuð vínstofan Le Chateaux Des Dix Chuttes eða Kastali hinna tíu dropa á Laugavegi 27. Franska vínstofan er til húsa á sama stað og kaffihúsið Tíu dropar. Kaffihúsið er opið á daginn frá níu til sex en þá tekur vínstofan við. David Bensow, eigandi frönsku vínstofunnar, breytir staðnum klukkan sex á daginn, þ.e.a.s. öllum merkingum, skiltum og myndum, til þess að búa til franska stemningu.

Staðurinn er klæðskersniðinn fyrir þá sem vilja gott vín, ost, hráskinku og jafnvel létta rétti. Einnig er boðið upp á eðalkaffi, kakó og vöfflur á kvöldin. Þægileg frönsk tónlist hljómar um staðinn og er lágt stillt svo fólk geti talað saman á rólegu nótunum.

Gestir staðarins ráða miklu um úrval léttvíns og tekur eigandi staðarins, David Bensow, tillit til óska kúnnans og hefur sérpantað vín eftir þörfum gesta. Bensow tekur líka fram að margir gestir hafi skoðanir á púrtvínsúrvalinu og finnst honum það áhugavert verkefni að kynna sér möguleika púrtvínsins.

Gestir frönsku vínstofunnar hafa flestir komið aftur og er staðurinn þétt setinn; svo virðist sem svona stað hafi vantað á Laugaveginn. Franska vínstofan tekur ekki nema 40 manns í sæti og því myndast skemmtileg stemning snemma á kvöldin. Bensow býður upp á vín vikunnar og einnig er sanngjarnt verð á bjórnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is