Ann góðum mat en enginn snillingur í eldhúsinu

Mynd 1 af 3
Jakob Frímann Magnússon. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Jakob hefur nýlokið gerð viðburðadagatals miðborgarinnar fyrir árið 2012 og þar kennir margra grasa. Eitthvað skemmtilegt er um að vera í hverjum mánuði sem fyrr greinir. Að þessum mánuði loknum tekur Hönnunarmars við ásamt Músíktilraunum, Blúshátíð og listsýningu Errós. Hestadagar verða í borginni í apríl og Hjóladagar í maí. Landsmót hestamanna í júní, Sumargleði borgarinnar í júlí og Gay Pride í ágúst auk Menningarnætur svo stiklað sé á stóru.

„Það eru áhugaverðar og metnaðarfullar hátíðir í borginni í hverjum mánuði,“ greinir Jakob frá. „Í sumum mánuðum eru hátíðir fleiri en ein eða tvær. Fyrir utan þetta erum við með langan laugardag í miðborginni fyrsta laugardag hvers mánaðar en þeim fylgja ákveðin þemu hverju sinni.“ Fylgjast má með því helsta HÉR.

Margar þessara hátíða skipa veglegan sess í lífi landsmanna og má þar nefna fyrir utan þær sem áður eru upptaldar bæði tónlistarhátíðina Airwaves og kvikmyndahátíðina RIFF, báðar að hausti. „Umheimurinn er að uppgötva að Ísland er með því allra mest spennandi sem völ er á í heiminum og á hagstæðari kjörum en nokkru sinni fyrr.“

Velur gæðin

Jakob segist vera matGæðingur með áherslu á G-ið í því orði. „Ég horfi fyrst á gæði og hollustu þess matar sem í boði er. Á mínu heimili er svonefndur „ofurmatur“ (superfood) í uppáhaldi og þess vegna borðum við iðulega lax með grænmeti, jafnvel vikulega. Við erum einnig mikið sushi-fólk þótt við búum það ekki til sjálf, látum sérfræðingana um það.

Þótt ég sé mikill áhugamaður um mat og matgæði hreyki ég mér ekki af neinni snilli í eldhúsinu. Ég get þó framkallað það allra einfaldasta og er nokkuð laginn við útigrillið sem við notum allan ársins hring. Við eldum þó miklu meira úr fiski og grænmeti en öðru hráefni. Varðandi kjötmeti er slíkt undantekning á heimilinu. Stundum rifja ég upp hið skondna svar Bjarkar Guðmundsdóttur í bresku blaði þegar hún var spurð hvort hún væri grænmetisæta. „Jú, ég er grænmetisæta sem borðar kjöt!“

Í göngufæri við allt það helsta

Við förum stundum út að borða. Það er svo mikil fjölbreytni og margt skemmtilegt í boði á veitingahúsum. Eftirlætisveitingahús okkar í Reykjavík er Austur-Indíafjelagið við Hverfisgötu. Ég tel það reyndar eitt besta indverska veitingahús í heimi. Ég hef ferðast til Indlands auk fjölmargra annarra landa og get vottað og fullyrt að ég hef hvergi upplifað betri indverskan mat. Þar ríkir virkilega skapandi matarmenning. Úrvalið í Reykjavík af gæðamat á veitingahúsum er auk þess einstakt,“ segir Jakob sem býr og starfar í miðborginni og þekkir vel til. „Það er stutt fyrir okkur að fara gangandi á flest þessara veitingahúsa. Mér finnst ég búa við fallegustu götu í Reykjavík, Bjarkargötu, en þaðan er stutt á Tjarnarborg þar sem dóttir mín er á leikskóla, síðan get ég rölt í vinnuna og verið á fæti í miðborginni sem er bæði hollt og skemmtilegt.“

Jakob segir að fjölskyldan fari oft saman í innkaupaleiðangra. „Matarkistan á Grandanum verður stundum fyrir valinu, þar eru Bónus, Krónan og Nóatún. Einnig förum við mjög oft í Melabúðina, sem er næst okkur. Þar er góð og fagleg þjónusta. Sú verslun tengist fjölskyldunni því stjúpsystir mín og maður hennar eru meðal þeirra sem reka hana. Við erum einnig tíðir gestir í Fylgifiskum. Þar fær maður sérstaka útfærslu á fiskinum. Við höfum miklar mætur á túnfiski og laxi. Konan mín er frábær kokkur og sér yfirleitt um eldamennskuna. Hún býr t.a.m. til frábært túnfiskpasta með grænmetisívafi af miklu listfengi. Hollur, gómsætur og ferskur hversdagsréttur,“ segir Jakob Frímann sem gefur lesendum uppskrift að þeim rétti.

elal@simnet.is

Einfalt túnfiskpasta með klettasalati

1 rauðlaukur

2 dósir túnfiskur í olíu

2-3 rif hvítlaukur, smátt saxaður

1 rauður chilipipar, smátt saxaður

kirsuberjatómatar

klettasalat

svart pasta (spaghetti nero)

svartur pipar

rifinn parmesan

maldonsalt

Skerið laukinn smátt og steikið hann ásamt hvítlauk og chilipipar í olíu þar til mjúkt. Bætið þá kirsuberjatómötum við og túnfiski og hrærið varlega saman. Kryddið með svörtum pipar og látið malla á mjög vægum hita.

Borið fram með svörtu spagettíi. Stráið parmesanosti, maldonsalti og að lokum klettasalati yfir. Gott að bera fram með snittubrauði.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sólginn í hráfæði

Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar.
í gær Guðmundur Örn Jóhannsson, nýr framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir forréttindi að vinna með fólki sem hefur það að markmiði að hjálpa öðrum. Meira »

Ný IÐA í Zimsen-húsinu

Bára Kristinsdóttir.
23.5. Bára Kristinsdóttir opnar innan tíðar litla IÐU í Zimsen-húsinu sem verður allt í senn bókabúð, gjafavöruverslun og kaffihús. Meira »

Indverskar vefjur og mangósósa

Jóhanna Jónas leikkona og veitingastjóri á Grænum kosti.
23.5. Lífrænt hráefni og ferskt grænmeti er í aðalhlutverki á veitingastaðnum Grænum kosti.  Meira »

Verðlaunablanda: Espresso-krydd með kjötinu

23.5. Espresso Rub nefnist ný þurrkryddblanda sem kom á markað hérlendis á dögunum.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is