Allir sem elska eru góðir kokkar
Elín Albertsdóttir elal@simnet.is
„Fyrsta bókin mín fjallaði um Rope Yoga-heimspekina, sjö skref til velsældar. Seinni bókin er fremur verkefnabók. Þar er farið í gegnum sjö skrefin og mataræði fyrir hverja viku. Ég hef verið með námskeið lengi sem heita sömu nöfnum og bækurnar. Það reynist mörgum einfaldara að breyta lífsvenjum á námskeiði heldur en einir heima,“ segir Guðni og bætir við. „Ég hef auk þess verið með sérstök námskeið sem heita GlóMotion Flex sem eru 90 mínútna tímar með áherslu á mataræðið. Þeir sem hafa farið eftir þessu hafa fundið fyrir miklum breytingum. Staðreyndin er sú að það er ekki til fitandi matur en það er til fitandi fólk. Við berum nefnilega fulla ábyrgð á því hvað við setjum ofan í okkur,“ segir Guðni ennfremur.
„Ég hef alltaf hugsað um mataræðið en mismunandi mikið. Ég er 57 ára og hef unnið með mataræðið frá blautu barnsbeini. Hef farið gegnum margar breytingar. Ég var grænmetisæta í langan tíma, síðan það sem kallað er Vegan, ég hef verið án mjólkurafurða og brauðs og farið í gegnum ýmis tilbrigði við mataræði til að komast að því hvað hentar mér. Ég borða ekki mikið unnar matvörur sem eru rýrar af næringarefnum.
Ég borða hins vegar mikið af lambakjöti og fiski og óendanlega mikið af grænmeti og ávöxtum. Einnig korn sem ekki hefur verið erfðabreytt og eyðilagt. Við erum þrjú í heimili. Sonur minn, átta ára, er með öðruvísi viðhorf til matarins. Hann sækir í það sem fyrir börnum er haft. Hann er þó skynsamur og veit muninn á næringu og mat. Ég segi að hann megi fá sér pítsu en það er ekki matur. Þá verður að borða eitthvað hollt á móti sem hann samþykkir. Annað slagið fær hann gosdrykk en drekkur þá ríflega af vatni á móti.“
Guðni segist vera góður kokkur en hann tekur til hendinni í eldhúsinu til jafns við eiginkonuna. „Allir sem elska eru góðir kokkar. Ég elda yfirleitt þegar gestir koma og sömuleiðis þegar við erum með kjöt. Móðir mín kenndi mér að það kemur ekkert meira upp úr pottinum en maður lætur í hann. Allt sem maður veitir athygli vex og dafnar. Það á ekki síst við um eldamennsku.
Við skiptum innkaupum með okkur. Ég fer helst í Víði í Garðabænum. Eiríkur Sigurðsson er góður kaupmaður, vandar vel til og er með mikið af lífrænt ræktuðum mat. Einnig fer ég talsvert í Græna hlekkinn í Nethyl 2 en þar er eingöngu lífrænt ræktaður matur. Ég vel lífrænt ræktað þegar það er í boði.
Guðni stofnaði á sínum tíma veitingahúsið Gló í Listhúsinu þar sem hann er með Rope Yoga. Þótt hann sé ekki lengur eigandi segist hann fara þangað nokkuð reglulega. „Saffran hefur staðið sig vel og svo er ég sushi-maður.“
Guðni segist hafa verið önnum kafinn undanfarið. „Svo lengi sem maður er með bros á vör og glampa í augum má maður vinna mikið,“ segir Guðni sem var staddur í skíðaferð á Ítalíu þegar viðtalið var tekið. Hann segir það kærkomið frí. „Þetta er draumur í dós,“ segir hann. „Bækurnar hafa fengið góðar viðtökur og margir hafa komið á námskeið í kjölfarið. Núna er ég að vinna að þýðingum fyrir enskan markað. Það er krefjandi að skrifa bók en ég fæ afar skemmtileg viðbrögð. Það verður örugglega til þess að þriðja bókin verður til einhvern tímann.“
Guðni ætlar að gefa uppskrift að einum uppáhaldsrétti sínum.
Grillað lamba rib eye
Ég kaupi lamba rib eye hjá Græna hlekknum en það eru þykkari bitar en lundin.
Ég set ólífuolíu og balsamedik í poka, pipar, salt og pínulítið af galdrakryddi og læt kjötið marinerast í þessu í 30-45 mínútur. Þá steiki ég kjötið á heitu grilli í 15-18 mínútur. Með þessu borðum við bara grænt og vænt salat. Út í það setjum við plómutómata, agúrkur, lárperu, papriku og granatepli. Þetta er einfaldur réttur og við viljum ekki hafa neitt annað með.
Ég mæli yfirleitt ekki neitt en líklegast eru 3 af olíu á móti 1 af balsam.
























