„Þessi kaka hefur alltaf slegið í gegn“

Kókóskaka.
Kókóskaka. Ljósmynd/Eva Rún Michelsen

„Loksins kem ég mér í að segja ykkur frá tertu sem ég hef gert ansi oft á síðustu 12 mánuðum. Það var fyrir ári sem vinnufélagi minn bað mig að gera fermingartertu fyrir sig með uppskriftinni hennar Halldóru. Held því að réttnefnið sé kókosbrúðartertan hennar Halldóru. Ég hef hinsvegar breytt uppskriftinni að því leyti að ég set sítrónukrem á milli botnanna í stað þess að setja rjómaostakremið sem fer utan um kökuna,“ segir Eva Rún Michelsen sem heldur úti blogginu Kökudagbókin. Hún segir að kókóskakan slái gjarnan í gegn. 

„Þessi kaka hefur alltaf slegið í gegn, sama við hvaða tilefni og árstíma en mér finnst þetta góð sumarterta. Þessi kaka er svo falleg með kókósnum ein og sér en er líka falleg með smá blómum. Ég var með nokkur blóm sem ég átti en held að lifandi blóm eins og fjólur eða blóm í svipuðum dúr passi mun betur við tertuna enda er það skreytingin sem Halldóra mælir með. Ég gerði þessa í stærra formi þannig að hún verður ekki jafn há, hinsvegar er hún alveg geggjuð þegar minni form eru notuð og verður mun brúðarlegri með þeim hætti.  Nóg um þessar lýsingar, hér er mynd af tertunni með og án blóma.“

Botnarnir:

  • 3 bollar (365 g) hveiti
  • 1 msk. lyftiduft
  • 3/4 tsk. salt
  • 3/4 bolli (170 g) ósaltað smjör – við stofuhita
  • 1 3/4 bolli (350 g) sykur
  • 4 stór egg, aðskilin
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 tsk. kókóstoppar (má sleppa)
  • 392 ml (1 dós) ósæt kókósmjólk – ég nota coconut cream í grænu eða brúnu dósunum sem fást í Kosti og Vietnam market á Suðurlandsbraut
  • 1/4 tsk. cream of tartar (má sleppa)

Rjómaostakrem (helmingið uppskriftina ef þið viljið sítrónukrem á milli)

  • 170 gr rjómaostur, við stofuhita
  • 1/4 bolli (60 g) ósaltað smjör)
  • 4 bollar (450 g) flórsykur
  • 1/4 bolli (ca. 4 msk.) kókosmjólk (afgangur af dósinni að ofan)

Sítrónukrem:

  • 125 ml ferskur sítrónusafi
  • 2 msk. ósaltað smjör
  • 3 stór egg
  • 1 stór eggjarauða
  • 1 1/4 dl sykur
  • 1/4 tsk. vanilludropar
  • hnífsoddur af salti

 Athugið að kremið er frekar blautt og hentar ekki sérlega vel í staflaðar kökur á hæðum.

Skreyting

  • 200 g sæt rifin kókoshneta (Angel Flake coconut frá Baker’s sem fæst í Kosti)
  • Ferskar fjólur eða önnur falleg blóm til skrauts

Aðferð – botnar:

  1. Hitið ofninn í 180°C
  2. Fóðrið botn og hliðar á tveimur 23 cm hringformum (má líka vera 20 cm eða 25 cm en athugið breyttan bökunartíma)
  3. Sigtið þurrefnin saman í skál og leggið til hliðar
  4. Hrærið smjör í skál og bætið sykrinum rólega saman við þangað til létt og ljóst, bætið svo eggjarauðunum við, einni í einu.
  5. Bætið bragðefnunum út í smjörsykursblönduna
  6. Geymið u.þ.b. 1/4 bolla (4 msk.) af kókosmjólkinni fyrir kremið
  7. Bætið þurrefnunum og kókosmjólkinni út í hræruna til skiptis. Byrjið og endið á þurrefnunum.
  8. Hrærið ekki lengur en þarf til að allt blandist saman, leggið til hliðar
  9. Þeytið eggjahvíturnar með cream of tartar (má sleppa) þangað til stífir toppar myndast.
  10. Blandið 1/3 af hvítunum saman við deigið og svo restinni.
  11. Skiptið milli formanna tveggja (má líka geyma í skál meðan annar botninn bakast séu ekki tvö form til staðar), sléttið og inn í ofn
  12. Bakið í u.þ.b. 30-40 mínútur eða þangað til prjónn kemur hreinn út þegar stungið í miðju kökunnar.

Aðferð – rjómaostakrem:

  1. Þeytið saman rjómaost og smjör þar til mjúkt.
  2. Sigtið flórsykurinn og blandið vel saman við
  3. Bætið kókosmjólk út í eftir þörfum, 1 msk. í einu, þar til kremið er nógu mjúkt til að dreifa á kökuna

Aðferð – sítrónukrem:

  1. Hitið saman sítrónusafa og smjör í potti yfir meðalhita, rétt þangað til fer að sjóða.
  2. Pískið saman egg og eggjarauðu í hitaþolinni skál, bætið svo sykrinum rólega saman við.
  3. Hellið sítrónublöndunni rólega saman við og pískið jafnóðum (hér er gott að eiga töfrasprota með písk eða handþeytara).
  4. Setjið allt saman aftur í pottinn og á helluna við meðalhita. Hrærið stanslaust með viðarsleif þangað til blandan þykknar, ca. 2-5 mínútur.
  5. Blandan er til þegar hægt er að draga fingur með bakhlið sleifar og skilji eftir sig slóð.
  6. Sigtið blönduna í hreina skál, setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp í ca. 1-2 tíma áður en þið notið kremið.

Hægt er að gera þetta krem allt að 5 dögum fram í tímann, geyma í vel lokuðu íláti í ísskáp.

Samsetning:

  1. Setjið annan botninn á disk og setjið smjörpappír í kring til að hlífa disknum og losna við þrif á diskbrún
  2. Setjið 3/4 af rjómaostakreminu EÐA 1/2 af sítrónukreminu og stráið 1/2 bolla af kókosmjölinu yfir.
  3. Setið seinni botninn yfir og smyrjið alla kökuna með kreminu, bæði ofan á og hliðar.
  4. Restin af kókosmjölinu sett utan um kökuna og bökunarpappírinn fjarlægður.
  5. Skreytið með blómum og öðru eftir smekk

Kökuna má vel gera daginn áður, jafnvel tveim dögum áður, en hana þarf að geyma í kæli á meðan og taka út 2 klst. áður en hún er borin fram.

Kókóskakan tilbúin.
Kókóskakan tilbúin. Ljósmynd/Eva Rún Michelsen
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert