„Segðu bara að þetta sé bökuð hráfæðisterta“

Girnileg heilsusamleg terta frá stórsöngkonunni Diddú.
Girnileg heilsusamleg terta frá stórsöngkonunni Diddú. Ljósmynd/Albert

„Það er afar gaman að fara í kaffi- eða matarboð til Sigrúnar Hjálmtýsdóttur söngkonu og hennar fjölskyldu. Diddú bjó lengi á Ítalíu og heillaðist þar, eins og fleiri, af mat Miðjarðarhafsins. „Segðu bara að þetta sé bökuð hráfæðisterta,” sagði Diddú aðspurð um tertuna og hló svo hátt að undir tók í dalnum. Ef það er rétt að hláturinn lengi lífið þá má gera ráð fyrir að Diddú lifi næstu aldamót,“ segir Albert Eiríksson matarbloggari.

Guðdómleg heilsuterta

150 g pekanhnetur

150 g valhnetur

100 g furuhnetur

300 g döðlur

300 ml appelsínusafi

3 bananar

100 g kókosmjöl

3 tsk. kanill

1 tsk. salt

2 tsk. lyftiduft

3 msk. kókosolía

Aðferð:

1. Setjið hneturnar í blandara og maukið
2. Sjóðið döðlurnar niður í appelsínusafanum í nokkrar mínútur og maukið síðan í blandara
3. Stappið banana í mauk
4. Blandið öllu ofantöldu vel saman í skál
5. Bætið þurrefnunum saman við jukkið
6. Bræðið kókosolíuna og blandið við allt saman

7. Bakið í tveimur 24 cm lausbotna formum klæddum að innan með bökunarpappír
Skiptið deiginu í tvennt og þrýstið ofan í formin

Bakið í ca. 20 mín við 180°

Krem á milli

1 lítil dós ananaskurl

1 stór dós kókosmjólk (mjólkinni hellt af svo rjóminn verði bara eftir)

Þeytið rjómann vel, hellið safanum af ananasinum og setjið kurlið saman við rjómann og síðan á milli botnanna.

Ofan á:

200 g af 70% suðusúkkulaði

3 msk. góð olía

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði ásamt olíu til að mýkja.

Smyrjið yfir kökuna og skreytið með berjum að vild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert