Karamelluhúðað Twixpopp

Karamellupopp með Twixi.
Karamellupopp með Twixi. Ljósmynd/Guðrún Veiga

„Ég er aðeins að vinna með Twixið þessa dagana. Þið ættuð nú mörg hver að vera farin að þekkja mína manísku matarhegðun. En þetta popp. Þetta popp! Mig skortir lýsingarorð. Karamellan, súkkulaðið, kexið og saltið. Dansar á tungunni eins og ég og Simon Cowell í heitum ástarleik. Kannski er Gordon Ramsay líka með okkur. Ha? Bubbi líka? Nei. Ókei. Ég er hætt,“ segir Guðrún Veiga Guðmundsdóttir matarbloggari í sínum

<a href="/smartland/pistlar/gveiga85/1365914/">nýjasta pistli.</a>

<img alt="IMG_6431" border="1" class="align_absmiddle" height="426" src="http://blog.is/users/fc/gveiga85/img/img_6431.jpg?img_id=1230606" title="IMG_6431" width="640"/> 

Einn poki Stjörnupopp

1 bolli smjör

2 bollar púðursykur

1/2 bolli sýróp

1/2 teskeið matarsódi

1 teskeið vanilludropar

3 stykki Twix

<img alt="IMG_6435" border="1" class="align_absmiddle" height="426" src="http://blog.is/users/fc/gveiga85/img/img_6435.jpg?img_id=1230607" title="IMG_6435" width="640"/> 

Byrjum á því að setja smjör, púðursykur og sýróp saman í pott. Suðan er látin koma upp við vægan hita og hrært stöðugt í á meðan. Leyfum þessu svo að sjóða óáreittu í fjórar mínútur. Tökum af hellunni og bætum matarsóda og vanilludropum út í.

Áður en karamellan er klár er gott að vera búin að dreifa úr poppinu á ofnplötu þakta bökunarpappír.

Hræra vel og vandlega saman.

<img alt="IMG_6490" border="1" class="align_absmiddle" height="426" src="http://blog.is/users/fc/gveiga85/img/img_6490.jpg?img_id=1230614" title="IMG_6490" width="640"/> 

Hella söxuðu Twixinu saman við.

<img alt="IMG_6491" border="1" class="align_absmiddle" height="426" src="http://blog.is/users/fc/gveiga85/img/img_6491.jpg?img_id=1230615" title="IMG_6491" width="640"/> 

Halda áfram að hræra. Ó, lyktin sem gýs upp á þessum tímapunkti. Þegar Twixið bráðnar saman við karamelluna. Mig langaði að leggjast með andlitið ofan á plötuna. Dýfa því ofan í poppið. Twixið. Karamelluna. Mmm.

<img alt="IMG_6493" border="1" class="align_absmiddle" height="426" src="http://blog.is/users/fc/gveiga85/img/img_6493.jpg?img_id=1230616" title="IMG_6493" width="640"/>

Inn í ísskáp með þetta. Í svona klukkutíma. 45 mínútur ef þið eigið ekki rauðvín til þess að stytta ykkur stundir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert