Kjúklingur í sætri chili-rjómasósu

Þessi réttur er nú aldeilis flott í páskabrönsinn eða bara …
Þessi réttur er nú aldeilis flott í páskabrönsinn eða bara í kvöldmatinn. Ljósmynd/Eldhúsperlur

Freistandi kjúklingur í púrrulauks- og sweet chili-rjómasósu af matarblogginu Eldhúsperlur. 

  • 5 kjúklingabringur, skornar í teninga (gúllasstærð)
  • 1 púrrulaukur, smátt skorinn
  • 2 dósir sýrður rjómi
  • 1 lítil dós rjómaostur (125 g)
  • 1 teningur kjúklingakraftur
  • 2 hvítlauksrif, smátt söxuð eða rifin
  • 4-5 msk sweet chili-sósa (eftir smekk)
  • 1 dl rifinn ostur
  • salt og pipar

min_IMG_4260Aðferð:

Hitið ofn í 200 gráður með blæstri. Hitið pönnu með smá smjöri eða olíu, saltið og piprið kjúklingabitana og brúnið þá vel eða þar til þeir eru nánast fulleldaðir. Setjið kjúklinginn í eldfast mót. Lækkið hitann á pönnunni, setjið smáolíu eða smjör á pönnuna og steikið púrrulaukinn þar til hann mýkist aðeins, ca. 3 mínútur.

Setjið rjómaostinn, sýrða rjómann, kjúklingatening, hvítlauk og sweet chili-sósuna út á og leyfið að malla aðeins, smakkið til með sweet chilli sósunni. Bætið örlitlu vatni saman við sósuna ef ykkur finnst hún of þykk. Stráið rifna ostinum yfir kjúklingabitana og hellið sósunni því næst yfir. Bakið í ofni við 200 gráður í 15 mínútur eða þar til kraumar í sósunni og hún hefur tekið lit. Berið fram með góðu grænu salati og grjónum.

min_IMG_4263

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert