Rabarbarapæ með engifer og svörtum pipar

Rabbabarapæ.
Rabbabarapæ. Ljósmynd/Helena

Helena Gunnarsdóttir matarbloggari á Eldhúsperlum bakaði rabarbarapæ á dögunum sem er ákaflega girnilegt.

  • Botninn:
  • 3 dl spelt, ég notaði fínt og gróft til helminga
  • 1/4 tsk salt
  • 3 msk sykur
  • 100 gr kalt smjör skorið í litla bita
  • 1/2 dl vatn (sett smám saman út í, gæti þurft aðeins meira eða aðeins minna)
  • Fylling:
  • 1 msk smjör
  • 7 dl saxaður rabarbari
  • 1 dl sykur (smakkið rabarbarann, stundum þarf meira og stundum minna)
  • 1/2 tsk engiferduft
  • 1/4 tsk nýmalaður svartur pipar
  • 3 tsk maíssterkja eða kartöflumjöl
  • 1 egg
  • 1 msk grófur demerara-sykur/hrásykur

min_IMG_5700

Hitið ofn í 180 gráður og gerið botninn. Myljið smjörið saman við mjölið, sykurinn og saltið með fingrunum þar til frekar vel blandað saman og smjörið komið í litla bita, á stærð við poppbaunir. Bætið vatninu smám saman út í eftir þörfum og vinnið saman með höndunum þar til deigið loðir saman og er ekki of blautt. (Athugið að nota alls ekki allt vatnið ef deigið er komið saman). Hnoðið deigið létt saman með höndunum. Setjið deigið á smjörpappír og leggið aðra smjörpappírsörk ofan á. Fletjið út með kökukefli þar til laglegur um það bil hringur hefur myndast og fyllir nánast út í bökunarplötu. Fjarlægið efri smjörpappírsörkina af útflöttu deiginu og leggið deigið á smjörpappírnum á bökunarplötu. Geymið á meðan fyllingin er útbúin.

Bræðið smjör á pönnu við meðalhita. Bætið rabarbara, sykri, engifer, pipar og maíssterkju út á pönnuna og látið malla í 5 mínútur á meðalhita eða þar til sykurinn leysist upp og vökvinn sem kemur af rabarbaranum þykknar aðeins. Hellið rabarbarablöndunni á miðjuna á deiginu og dreifið aðeins úr en gætið þess að skilja eftir smákant. Flettið köntunum á deiginu upp á fyllinguna og athugið að þetta á ekki að vera fullkomið. Penslið kantana með eggi og stráið hrásykrinum yfir kantana og rabarbarann. Bakið neðarlega í ofni í 20-25 mínútur. Leyfið að kólna í 10-15 mínútur áður en pæið er skorið. Berið fram volgt með góðum vanilluís.

min_IMG_5712

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert