Jarðarberjafjóluterta

Æðislega sumarleg og falleg baka.
Æðislega sumarleg og falleg baka. Ljósmynd/Krydd og Krásir

Krydd og Krásir eru oft með skemmtilegar uppskriftir eins og þessa Jarðarberja-fjólutertu sem er afskaplega sæt og sumarleg.

Þetta þarf í kökubotninn:

  •   170 gr. hveiti
  •   2 msk. sykur
  •   100 gr. kalt smjör skorið í litla bita
  •   1 eggjarauða
  •   2-3 msk. kalt vatn
  •   40-50 gr. suðusúkkulaði, rífið á rifjárni í smáar flögur (t.d. með Microplane járni)

Hnoðið saman smjöri, hveiti og sykri – mér hefur reynst best að vinna deigið í matvinnsluvél. Bætið eggjarauðu og hluta af vatninu saman og hnoðið þar til deigið er komið í góða kúlu. Athugið að ekki er víst að það þurfi allt vatnið. Mikilvægt er að hnoða deigið eins lítið og mögulegt er – þannig verður það stökkt og gott, en ef það er hnoðað of mikið er hætt við því að það verði seigt. Setjið deigið í skál og geymið í kæli í u.þ.b. 15 mínútur.

Fletið deigið út á hveitistráðu borði og setjið í 24-26 cm bökuform.  Setjið farg á deigið og bakið við 180 C í 10-15 mínútur, takið fargið af botninum og bakið áfram í 3-5 mínútur eða þar til botninn er gullinn á lit.  Rífið súkkulaðið niður og dreifið því yfir botninn um leið og þið takið hann úr ofninum. Kælið og setjið á kökudisk.

Þetta þarf í fyllinguna:

  •   1 egg
  •   2 tsk. sykur
  •   1/2 tsk. vanilludropar*
  •   250 gr. mascarpone ostur
  •   1/2 dl. rjómi
  •   250-300 gr. jarðarber
  •   ferskar fjólur

Hafið maskarpone ostinn við stofuhita.  Setjið egg, vanillu og sykur í skál og hrærið vel saman.  Bætið ostinum og rjómanum smátt og smátt saman við og hrærið þar til allt er vel samlagað, ljóst og létt.

Takið græna stilkinn af jarðarberjunum og skerið berin í jafnar og fallegar sneiðar. Raðið þeim yfir fyllinguna og skreytið með fjólum.

Girnilegt og fallegt.
Girnilegt og fallegt. Ljósmynd/Krydd og Krásir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert