Jafnast á við sleik við Gordon Ramsay

Ljúffengt piparmyntusúkkulaðipopp.
Ljúffengt piparmyntusúkkulaðipopp. Ljósmynd/Guðrún Veiga

Guðrún Veiga hefur verið að prófa sig áfram með poppkorni og einhverju til þess að bragðbæta það með. Í nýjasta pistli sínum á Smartlandi býr hún til frumlegt piparmyntusúkkulaðipopp. 

Nei, ég var ekki að horfa á HM í gærkvöldi. Hreint ekki. Ég var að njóta ásta með nýjustu poppafurð minni sem leit dagsins ljós hérna í Breiðholtinu í gær. 

Ó, halló besta kex í heimi. Fyrir utan Oreo.

Eruð þið spennt að sjá hvert ég er að fara með þetta?

Piparmyntusúkkulaðipopp:

Rúmlega 1/2 poki Stjörnupopp

10 Viscount kexkökur

1 poki súkkulaðidropar

1 stykki Pipp

Þið ættuð að vera farin að kunna verkferlið í kringum poppframkvæmdir.

Bökunarpappír á ofnplötu og poppið þar ofan á. 

Söxum kexið í grófa bita.

Bræðum saman Pippið og súkkulaðidropana.

Hellum súkkulaðiblöndunni yfir poppið og hrærum vel.

Hendum kexinu saman við og hrærum, hrærum og hrærum.

Inn í ísskáp í góðar 30 mínútur. Sleikja skeiðina, skurðarbrettið og pottinn.

Sennilega jafn gott og að fara í sleik við Gordon Ramsay. 

Hrikalega ljúffengt. Alveg hrikalega.

Heyrumst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert