Ómótstæðileg ostakaka

Ostakaka með karamellusósu.
Ostakaka með karamellusósu. Ljósmynd/Birna Varðardóttir

Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt útbjó girnilega ostaköku.

Botn

3 stk twix súkkulaði (um það bil 180 g)
50 g heilhveitikex
75 g smjör

  1. Skerið twix í bita og setjið í matvinnsluvél ásamt heilhveitikexinu.  Látið vélina ganga þar til allt er orðið að mylsnu.  Hrærið smjörið þá saman við. Hellið mylsnunni í meðalstórt smelluform og þrýstið henni niður og 3-4 cm upp með hliðunum. Kælið í a.m.k. hálftíma.

Fylling

400 g rjómaostur
100 g sykur
1 dós sýrður rjómi (18%)
5 matarlímsblöð
1/2 dl rjómi
3 stk. mars (u.þ.b. 150 g)

  1. Hrærið rjómaostinum vel með sykrinum og blandið svo sýrða rjómanum saman við með sleikju. Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn í nokkrar mínútur.
  2. Hitið rjómann og kreistið vatnið úr matarlímsblöðunum bræðið þau síðan í rjómanum og hrærið saman við ostablönduna með sleikju.

Karmellusósa

1/2 dl rjómi
40 g púðusykur
40 g smjör

  1. Setjið rjóma, smjör og púðusykur í pott hitið að suðu og látið sjóða í 2 mínútur. Hellið helminginum af ostablöndunni í kexskelina. Skerið marsstykkin í bita og dreifið þeim yfir. Jafnið afganginum af ostablöndunni þar yfir og hrærið í blöndunni með prjóni eða hnífsoddi, stingið honum ekki langt niður og hreyfið hann í létta hringi til að blanda karmellunni lauslega saman við ostafyllinguna. Kælið í nokkrar klukkustundir, helst yfir nótt. Losið kökuna varlega úr forminu og berið fram.
Ostakaka í vinnslu.
Ostakaka í vinnslu. Ljósmynd/Birna Varðardóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert