Einhverskonar stjörnusalat úr Snickers

Snickers-salat Guðrúnar Veigu.
Snickers-salat Guðrúnar Veigu. Ljósmynd/Guðrún Veiga

„Ég gaf uppskriftina að þessu stórkostlega salati í Fréttablaðinu um helgina og var búin að lofa henni hingað inn líka. Þetta er sko svo gott að mann langar að flytja búferlum ofan í helvítis skálina. Já. Ég veit það er mánudagur og við erum öll í megrun. En ég ætla samt að láta flakka,“ segir Guðrún Veiga í sínum nýjasta pistli.

Snickerssalat:

1 pakki vanillubúðingur (Helst frá Jello)
1 bolli köld mjólk
1/2 líter rjómi
6 stykki Snickers
3 rauð epli
Jarðaber eða kiwi til skrauts.

Leysið upp búðingsduftið í mjólkinni. Þeytið rjómann og blandið honum varlega saman við búðingsblönduna. Saxið Snickers og epli og hrærið saman við. Skreytið með ferskum ávöxtum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert