Lasagna með beikoni

Girnilegt lasagna.
Girnilegt lasagna. Ljósmynd/Guðrún Veiga

„Ég ætla að leyfa mér að fullyrða að hér sé um að ræða besta lasagne í heimi. Afkvæmið vill meina það. Við erum svipuð þegar kemur að einhverju matarkyns - vitum svo sannarlega hvað við syngjum. 

Þið ættuð að þekkja mína lífsspeki. Það er allt betra með beikoni. Einfalt mál. Ég get borðað beikon með öllu. Mmm, að dýfa stökku beikoni í bráðið dökkt súkkulaði - guðdómlegt! Nú eða beikonsmákökurnar mínar, almáttugur minn. Svo við ræðum ekki einu sinni beikonpönnukökurnar,“ segir ofurbloggarinn Guðrún Veiga.

Lasagne með beikoni og sólþurrkuðum tómötum:

 

500 gr hakk

Ca. 200 gr beikon

Lítil krukka af sólþurkkuðum tómötum

1 lítil dós tómatpúrra

1 dós niðursoðnir tómatar

1 dl vatn

Lasagneplötur

1 stór dós kotasæla

Ostur

Svartur pipar

Salt

Oregano

Chillikrydd

Paprikukrydd

Tacokrydd (í rauðu pokunum)

Cayenne pipar

1/2 nautateningur

Steikið hakkið á pönnu við vægan hita. Kryddið með salti, pipar, papriku, oregano og tacokryddi (sirka hálfum poka). Setjið örlítið af cayanne pipar og chillikrydd eftir smekk. Saxið beikonið og steikið létt á annarri pönnu. Blandið því svo saman við hakkið þegar það hefur tekið lit. Látið beikonfituna gossa af pönnunni líka. Mmm.

Sigtið olíuna af sólþurrkuðu tómötunum og saxið þá smátt. Það er líka hægt að kaupa þá saxaða - mun hentugra. Bætið þeim við hakkið og beikonið. Hellið niðursoðnu tómötunum og tómatpúrrunni á pönnuna. Setjið desilíter af vatni saman við og hálfan tening af nautakrafti. Leyfið þessu að malla í góða stund. 

Ég treysti á að þið kunnið framhaldið. Hakkblanda, lasagneplötur, kotasæla. Endurtaka. Ostur yfir. Inn í ofn á 180° í sirka 30 mínútur.

Ljósmynd/Guðrún Veiga
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert