Þorskur frá lækninum í eldhúsinu

Þorskur í indverskri sósu.
Þorskur í indverskri sósu. Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson

„Þessi réttur er innblásinn af myndbandi sem ég sá á netinu um daginn. Þar sá ég kokk matreiða Murgh Makhani sem er kjúklingur í smjörsósu. Þetta virkaði á mig sem afar heillandi uppskrift. Ég fór á stúfana og eins og áður þá eru til óteljandi uppskriftir af þessum rétti á netinu, margar hverjar ansi heillandi. Mér þykir þetta góð leið til að fá innblástur - lesa margar uppskriftir og reyna svo að leika það eftir eftir minni. Það er skemmtilegt hvaða hlutir það eru sem maður man alltaf og hvaða það er sem maður gleymir,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson læknir og matarbloggari á Læknirinn í eldhúsinu.

„Sósan er gerð alveg sér og mætti í sjálfu sér nota með öðru en fiski. Upprunalega var jú hugsað að hafa hana með kjúklingi sem er ábyggilega ekkert síðra.

Fyrir fjóra til sex

1 kg þorskhnakki

1 tsk. gróft salt

1/2 tsk.nýmalaður pipar

1 tsk. garam masala

2 tsk. túrmerik

1 tsk. paprikuduft

1/2 hvítlauksduft

Fyrir sósuna

75 g smjör

2 skalottulaukar

4 hvítlauksrif

1 kanilstöng

1 msk paprikuduft

2 tsk. túrmerik

1 tsk. broddkúmen

1 tsk. garam masala

fræ úr 4 kardimommum

3-4 negulnaglar

2 msk. tómatpúre

1 dós niðursoðnir tómatar

Safi úr 1/2 sítrónu

150 ml rjómi

Setjið þorskinn í skál og blandið kryddinu saman við, garam masala, túrmeriki, papríkudufti og hvítlauksduftinu. Saltið og piprið og látið síðan standa í ísskáp í um klukkustund. Fiskurinn þéttist aðeins við að liggja í salti í þennan tíma.

Takið eina kanilstöng, þrjá til fjóra negulnagla og svo fræin úr fimm kardimommum. Það kemur mikið bragð úr þessu kryddi. 

Skerið tvo skarlottulauka og hvítlauksrifin smátt niður og steikið í smjörinu.

Tvær kúfaðar skeiðar af tómatmauki gefa sósunni fallegan lit og kraft. 

Safi úr hálfri sítrónu. 

Bætið við kúfaðri skeið af paprikudufti saman við sósuna. 

Og svo túrmeriki, broddkúmeni og garam masala kryddblöndu. 

Bætið rjómanum saman við og hitið að suðu og látið sósuna krauma í 15 mínútur. 

Ég klæddi ofnskúffu með álpappír og lagði fiskinn ofan á. Blússhitaði ofninn á hæsta mögulega hita með grillið í gangi!

Setjið fiskinn í miðjan ofninn og grillið í sjö til átta mínútur.

Tyllið svo fiskinum í sósuna og skreytið með steinselju, eða kóríander. 

Berið á borið með hrísgrjónum og þessu ótrúlega einfalda tómat- og lauksalati. Skerið laukinn og tómatana með mandólíni. Raðið á disk. Setjið safa úr hálfri sítrónu yfir og svo skvettu af jómfrúarolíu. Saltið og piprið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert