Smákökudeig í hollari kantinum

Þetta deig eða bæði hollt og gott.
Þetta deig eða bæði hollt og gott. laurenconrad.com/

Raunveruleikastjarnan Lauren Conrad er mikill sælkeri og hefur gaman af að útbúa mat og kökur. 

Conrad heldur úti heimasíðu þar sem hún birtir reglulega uppskriftir að gómsætum mat og nýverið deildi hún með lesendum sínum uppskrift að hollu smákökudeigi.

„Ég hef alltaf verið ein af þeim er vilja frekar borða hrátt kökudeig með skeið  en að bíða eftir að það bakist inni í ofni. Og þegar deigið er prótein- og trefjaríkt...þá af hverju ekki?“ skrifaði Conrad meðal annars á heimasíðuna sína.

Hollt og próteinríkt smákökudeig

  • einn og hálfur bolli kjúklingabaunir
  • hálfur bolli mjúkt hnetusmjör
  • tvær matskeiðar agavesíróp
  • ein matskeið hlynsíróp
  • ein teskeið vanilludropar
  • hálfur bolli dökkt súkkulaði

Aðferð:

  1. Blandaðu kjúklingabaununum, hnetusmjörinu, vanilludropunum og agave- og hlynsírópinu saman í matvinnsluvél þar til áferðin er orðin mjúk.
  2. Færðu deigið yfir í stóra skál og blandaðu þá súkkulaðibitunum saman við deigið með sleif.
  3. Kældu þá deigið inni í ískáp því það bragðast mun betur ískalt.
Einstaklega girnilegt.
Einstaklega girnilegt. laurenconrad.com/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert