Þessi gómsæta osta- og spínatbaka hentar grænmetisætum og öllum sem kunna góðan mat að meta. Hana tekur um 10 mínútur að undirbúa og 30 mínútur að elda. Bakan er staðgóð og bragðmikil. Uppskriftin kemur af heimasíðunni Lovely Bites.
Hráefni
- 1 bolli hveiti
- 1 teskeið salt
- 1 teskeið lyftiduft
- 2 þeytt egg
- 100 grömm smjör, brætt
- 1 bolli mjólk eða jógúrt
- 1 laukur, saxaður
- 450 grömm rifinn cheddar ostur
- 1 poki spínat, saxað
Aðferð
- Forhitaðu ofninn í 180°.
- Blandaðu hveitinu, saltinu, lyftiduftinu, eggjunum, smjörinu og mjólkinni saman í stóra skál.
- Bættu svo lauknum, ostinum og spínatinu saman við.
- Helltu blöndunni í smurt bökunarform.
- Bakaðu bökuna í um 30-35 mínútur.
- Taktu bökuna út úr ofninum þegar hún er orðin gyllt og girnileg og láttu hana standa í um fimm mínútur. Skerðu þá bökuna niður í hæfilega stórar sneiðar.
Svona lítur bakan út áður en hún er elduð.
www.kristaandmichele.com