Snickers-smákökur

Girnilegar eru þessar kökur.
Girnilegar eru þessar kökur. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt bakaði girnilegustu smákökur norðan Alpafjalla á dögunum. Í þeim voru sætindin ekki spöruð.


100 g snickers, saxað
150 g súkkulaði, saxað  (gott að nota suðusúkkulaði og rjómasúkkulaði til helminga)
150 g púðursykur
80 g smjör
1 egg
160 g hveiti
1/4 tsk natron
1/3 tsk salt
vanilludropar

  1. Öllu blandað saman. Rúllað í lengju og kælt. Skorið í sneiðar. Bakað við 175° í 8 mín. Kökurnar eru hafðar frekar ljósar.
  2. Um að gera að margfalda uppskriftina, rúlla deiginu upp í plast og frysta;), eiga svo tilbúið þegar gestir koma í hús;)
Snickers smákökur Berglindar Guðmundsdóttur.
Snickers smákökur Berglindar Guðmundsdóttur. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
Svona líta kökurnar út áður en þær fara inn í …
Svona líta kökurnar út áður en þær fara inn í ofn. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert