Flugfreyjan og matarbloggarinn Valdís Sigurgeirsdóttir útbjó girnilegar kókosmakkarónur á dögunum. Valdís heldur úti bloggsíðunni Ljómandi.is en þar er að finna úrval af súpergirnilegri hollustu.
Hráefni
120 g kókosmjöl
2 egg
60 g erýtrítol m stevíu
1 tsk vanilluextrakt
börkur af einni sítrónu (allra helst lífræn)
25 g kókosolía (fljótandi)
smá salt
Súkkulaði
50 g bráðið súkkulaði (jafnvel aðeins meira ef þið viljið hafa súkkulaðið þykkt)
1 tsk kókosolía (fljótandi)
1 msk pistasíuhnetur
nokkur trönuber eða annar þurrkaður ávöxtur
- Hitið ofninn í 175 gr.
- Þeytið saman egg, sykur, vanillu, sítrónubörk og salt þangað til létt og ljóst, getur tekið smátíma.
- Hrærið olíunni og kókosmjölinu út í og látið standa í a.m.k. 15 mínútur eða þar til kókosmjölið hefur dregið í sig vökvann og deigið er orðið frekar stíft. Mér fannst 15 mínútur of stuttur tími svo ég setti skálina inn í ísskáp í ca. klukkustund.
- Mótið litlar keilur úr tæplega 1 msk af deiginu og setjið á bökunarpappír.
- Bakið í ofni í ca. 8-10 mínútur og takið úr ofninum þegar þær byrja að gyllast því ef deigið er of lengi í ofninum verður það alltof þurrt.
- Látið alveg kólna.
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði.
- Saxið pistastíuhneturnar niður og trönuberin. Það er hægt að nota hvaða ávöxt sem er eins og þurrkað mangó og jafnvel að nota þurrkað, sætt engifer.
- Dýfið flata endanum á keilunum í súkkulaðið, jafnvel 2X og setjið á bakka með mjórri endann niður.
- Stráið pistasíunum og berjunum yfir.
- Geymist í kæli í ca. viku og lengur í frysti.
- Njótið!
Guðdómlega girnilegar kökur.
Ljósmynd/Valdís