Guðdómlegur morgunverðarþeytingur

Gómsætur morgunverðarþeytingur.
Gómsætur morgunverðarþeytingur. www.bakerbynature.com

Þessi djúsí og saðsami þeytingur bragðast eins og súkkulaðiís. Þessi er tilvalinn í morgunmat þegar maður vill dekra við sjálfan sig.

Hráefni:

  • 2 þroskaðir bananar, skornir í bita og frosnir
  • 2 matskeiðar hnetusmjör
  • 2 matskeiðar hunang
  • 1 ½ matskeið kakóduft
  • 1 ½ bolli möndlumjólk

Aðferð:

Settu allt hráefnið í blandarann þar til mjúkt og kekklaust. Gerist ekki mikið einfaldara. Uppskriftin kemur af heimasíðunni BakerByNature.com.

Kakóduftið gefur þeytingnum guðdómlegt súkkulaðibragð.
Kakóduftið gefur þeytingnum guðdómlegt súkkulaðibragð. www.bakerbynature.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert