Ofnbakaðar og marineraðar lærissneiðar

Þær eru girnilegar lærissneiðarnar hans Ragnars Freys Ingvarssonar.
Þær eru girnilegar lærissneiðarnar hans Ragnars Freys Ingvarssonar. Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson

„Ég lenti inn á spjallþræði í dag þar sem spurt var um uppskrifir að lambalærissneiðum. Margar ljúffengar uppástungur lentu inn á þræðinum en ég tefldi fram þessari uppskrift sem ég birti í Veislunni endalausu sem kom út núna fyrir jólin! Fyrst ég var búinn að skella henni inn á FB var alveg gráupplagt að leggja hana líka inn á síðuna mína,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson læknir eða Læknirinn í eldhúsinu eins og hann er kallaður í sinni nýjustu bloggfærslu:

Í þessum rétti sameinast Norður-Afríka og Ísland á dásamlegan hátt. Íslenskar lambalærissneiðar og svo krydd sem einkenna matargerð Marokkó og Túnis og raunar Líbanons líka. Ég er þó nokkuð sannfærður um að þetta sé ekki réttur úr þeirra ranni en svona er það þegar ein menning mætir annarri.

Lamb er þó mjög fyrirferðarmikið í matargerð íbúa Norður-Afríku þar sem sauðkindin er ekki þurftafrekt dýr og hefur haldið í þeim lífinu í gegnum aldirnar eins og okkur hér á norðurslóðum.

Það mætti alveg bæta við steyttum kóríanderfræjum án þess að rétturinn myndi bíða tjón af – kannski verður hann bara betri?

Fyrir átta

8 fallegar lambalærissneiðar

5 msk. jómfrúarolía

2 tsk. paprikuduft

1 msk. broddkúmen

2 tsk. engiferduft

safi úr tveimur sítrónum

börkur af tveimur sítrónum

4 hvítlauksrif

salt og pipar

börkur af einni sítrónu að auki til skreytingar

myntulauf til skreytingar

  1. Hellið jómfrúarolíu í stórt eldfast mót
  2. Blandið saman við paprikudufti, steyttu broddkúmeni og engiferdufti.
  3. Saxið hvítlaukinn mjög smátt og bætið í eldafasta mótið.
  4. Raspið utan af tveimur sítrónum og kreistið safann út í kryddblönduna.
  5. Skolið og þerrið lambalærissneiðarnar og veltið þeim upp úr kryddblöndunni. Hendið niðursneiddum sítrónunum ofan á og marinerið að lágmarki í eina til tvær klukkustundir, helst yfir nótt.  

  1. Bakið allt saman við 180 gráður í forhituðum ofni í 15-17 mínútur. Takið út einu sinni til að ausa vökvanum yfir.
  2. Raðið á fat, ásamt sítrónusneiðum og ausið safanum yfir. Skreytið með ferskum sítrónuberki og myntulaufum.

 Berið fram með gufusoðnu grænmeti og tabbouleh (uppskriftir að þessum réttum er að finna í bókinni minni). 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert