Kóreska grillmenningin hefur sína sérstöðu og einhver þekktasti rétturinn er bulgogi, sem er kjöt, yfirleitt nautakjöt, sem hefur verið marinerað í sojasósu, sykri, hvítlauk og sesamolíu áður en það er grillað. Kóreskir “BBQ”-staðir sem bjóða upp á bulgogi sem gestir grilla sjálfir við borðin hafa notið töluverðra vinsælda ekki síst í Bandaríkjunum og jafa jafnvel teygt sig hingað til lands.
Í þessum hlægilega einfalda og fljótlega hakkrétti náum við sama bragði og í bulgogi.
Blandið saman sojasósu, púðursykri, sesamolíu, engifer, og chiliflögum. Geymið.
Hitið olíu á pönnu. Setjið pressaða hvítlaukinn á pönnuna (þetta eiga að vera svona 2 msk af pressuðum hvítlauk) og veltið um í olíunni í um mínútu. Setjið þá kjötið á pönnunna og brúnið. Þegar búið er að brúna hakkið er sojasósublöndunni hellt á pönnuna og hrært saman við. Leyfið að malla í nokkrar mínútur.
Berið fram með jasmín-hrísgrjónum og söxuðum vorlauk.
Uppskrift: vinotek.is