Sveittasti eftirréttur allra tíma gerir allt vitlaust

Eftirréttir gerast ekki mikið sveittari en þetta.
Eftirréttir gerast ekki mikið sveittari en þetta. www.ohbiteit.com

Þetta er mjög líklega sveittasti eftirréttur sem fyrirfinnst. Beikonvafðar Oreo-kexkökur eru ekki fyrir hvern sem er, þennan rétt höndla bara allra svakalegustu sælkerarnir.

Á heimasíðunni OhBiteIt má finna uppskrift af þessum einfalda rétt. Uppskriftin hefur vakið mikla athygli en hún hefur fengið um 14.000 „læk“ á Facebook.

Innihald:

  • Oreo-kex
  • Beikon-sneiðar
  • Tannstönglar
  • Olía til steikingar

Aðferð:

  1. Hverju og einu Oreo-kexi er vafið inn í beikonsneið. Sjáðu til þess að beikonið umlyki allt kexið.
  2. Notaðu tannstöngul til að festa beikonsneiðina með því að stinga því varlega í gegnum fyllingu kexkökunnar.
  3. Beikonvafða kexið er svo steikt á pönnu þar til beikonið eru orðið gyllt og stökkt.

„Borðaðu kexkökurnar heitar, teystu mér,“ skrifar manneskjan sem ber ábyrgð á þessari óvenjulegu uppskrift.

Svona á beikonvafða kexið að líta út áður en það …
Svona á beikonvafða kexið að líta út áður en það er steikt á pönnu. www.ohbiteit.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert