Girnilegar kúlur sem innihalda meðal annars chia-fræ og hafra.
www.thehonoursystem.com
Hérna kemur sáraeinföld uppskrift af gómsætum chia-kúlum sem veita orku og fyllingu. Uppskriftin kemur af The Honour System.
Hráefni
- 1/2 bolli möndlusmjör
- 1/3 bolli hunang
- 1/4 bolli kókóduft
- 1 teskeið vanilla
- 1 bolli hafrar
- ¼ bolli chia-fræ
- klípa sjávarsalt
- ¼ bolli dökkar súkkulaðispænir
Aðferð:
- Bræddu möndlusmjörið og hunangið saman á pönnu á lágum hita. Hrærðu kakóduftinu, sjávarsaltinu og vanillunni saman við. Hrærðu vel.
- Blandaðu chia-fræunum og hörfunum saman í skál. Helltu blöndunni af pönnunni yfir hafrana og hrærðu vel. Notaðu fingurna til að hnoða deigið og geymdu það inni í ísskáp í nokkrar mínútur. Bættu súkkulaðispænunum saman við deigið og hnoðaðu litlar kúlur úr því.
- Deigið dugar í um 16 kúlur og þær geymast inni í ísskáp.