Steinseljuaioli…nú eða basil

Aioli er suður-evrópsk sósa sem oft er tengd við Provence í Frakklandi en er líka algeng í Katalóníu og raunar alveg niður til Valencia. Heitið kemur úr katalónsku orðunum all e oli, hvítlaukur og olía og þetta er í raun hvítlauksmajonnes. Hér blöndum við líka kryddjurtum saman við og úr verð þessi líka fína kalda sósa með grillmatnum. Það er er hægt að nota steinselju eða basil.

  • 1 eggjarauða
  • 1 dl nýrifinn parmesanostur
  • 1 væn tsk Dijon-sinnep
  • 2 hvítlauksrif
  • safi úr hálfri sítrónu
  • 2 dl matarolía
  • 1 dl ólífuolía
  • 1/2 búnt flatlaufa steinselja
  • salt og pipar

Byrjið á því að setja steinseljuna (nú eða væna lúku af basilblöðum) í matvinnsluvél. Maukið fínt. Setjið næst rifna parmesanostinn, sinnepið, eggjarauðuna og sítrónusafann út í og þeytið vel saman. Blandið olíunum saman og hellið í hægri bunu saman við, þeytið á meðan. Sósan fer að þykkna hratt. Þegar hún er orðin þétt er bragðað til með salti og pipar.

Fleiri góðar kaldar sósur finnið þið með því að smella hér.

Uppskrift: vinotek.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert