Laganeminn Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir stýrir þættinum Grillsumarið mikla sem sýndir verða á mbl.is í sumar. Grillsumarið mikla leitar að liðum til að keppa um titilinn „Grillmeistarar Íslands 2015“. Liðin samanstanda af 3 til 5 einstaklingum sem eru ástríðu grillarar.
Það lið sem hlýtur titilinn Grillmeistarar Íslands 2015 vinnur helgarferð fyrir hópinn með Heimsferðum. Grillsumarið mikla velur 8 lið sem munu berjast um titilinn Grillmeistarar Íslands 2015.
Liðin sem valin verða til þátttöku fá hráefni til að grilla tvo rétti á 60 mínútum.
Liðin fá afhenta leyndardómsfulla matarkörfu fulla af girnilegu hráefni. Í kjölfarið þarf liðið að koma sér saman um tvo rétti sem þarf að matreiða á 60 mínútum með því að nota einungis grill og ímyndunaraflið. Þáttastjórnandi ásamt tökumanni mætir við grillið þitt og tekur fjörið upp. Munu atkvæði skera úr um hvaða lið hlýtur titilinn Grillmeistarar Íslands 2015 ásamt ógleymanlegri sælkeraferð.
Þættirnir verða á dagskrá vikulega í allt sumar og hefur hvert lið eina viku til að safna atkvæðum. Aldurstakmark er 20 ár.
HÉR getur þú skráð lið þitt til leiks.