Ómótstæðilegur kókosbolludraumur

Það er erfitt að standast þennan eftirrétt.
Það er erfitt að standast þennan eftirrétt. www.alberteldar.com

„Stundum þarf maður á því að halda að sukka, sukka feitt. Ég gat ekki með nokkru móti hætt að „smakka aðeins meira“,” skrifar Albert Eiríksson sem fékk að smakka þennan ómótstæðilega rétt hjá samstarfsfélaga. 

„Ef þið notið banana þá er ágætt að blanda þeim við rjómann eða dýfa þeim í sítrónuvatn svo þeir verið ekki svartir. Þeir sem ekki vilja nota sérrý í botninn geta haft ávaxtasafa og síðast en ekki síst: þið sem eruð í megrun gleymið þessu,“ bætir Albert við á matarblogginu sínu Albert Eldar

Hráefni

  • 20 ca. Lady fingers kökur
  • 2 dl sérrý yfir eða annar safi
  • 1/2 l rjómi þeyttur
  • 4-5 kókosbollur
  • 1 Rice krispies botn (eða venjulegur marengsbotn)
  • Jarðarber, bláber, mangó og kíwi og bananar eða aðrir ávextir
  • 2 Snickers

Aðferð

  1. Raðið Ladyfingers í form, hellið sérrýi/vökva yfir. Bætið kókosbollum saman við þeytta rjómann með sleif/sleikju og setjið yfir Ladyfinger kökurnar (má líka nota makkarónur)
  2. Brjótið Rice krispies niður og stingið ofaní rjómann
    Skerið ávextina niður og raðað ofan á. Skerið Snickers í bita og setjið yfir.
  3. Í upphaflegu uppskriftinni voru 50 g af súkkulaði og Snickers brætt saman og hellt yfir. Þið ráðið hvora aðferðina þið notið
Gerist ekki mikið girnilegra en þetta.
Gerist ekki mikið girnilegra en þetta. www.alberteldar.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert