Hnetu- og berjakex fyrir krakkana

Gómsætt hnetu- og berjakex fyrir krakkana.
Gómsætt hnetu- og berjakex fyrir krakkana. heilsuhusid.is

„Það er mikilvægt að koma hollustu í litla kroppa og það getur reynst snúið og stundum þarf að hugsa út fyrir boxið. Hér er ein góð uppskrift að hollu hnetu og berjakexi sem öll fjölskyldan getur notið saman,“ segir á heimasíðu Heilsuhússins en þaðan kemur þessi góða uppskrift.

Hráefni

  • 1/2 bolli möndlur, lagðar í bleyti yfir nótt
  • 1/2 bolli kasjúhnetur
  • 1/4 bolli graskersfræ
  • 1/4 bolli goji-ber
  • 1/4 bolli kakónibbur
  • 2 tsk hamp-fræ
  • 2 tsk chia-fræ
  • 2 tsk kókosolía
  • 1 tsk vanillu extract
  • 1/2 tsk Himalayan crystal salt eða sjávarsalt
  • 1 1/2 bolli döðlur

Aðferð

Blandið öllu vel saman í matvinnsluvél. Setjið döðlurnar síðast út í blönduna. Mótið deigið í þægilega stærð og raðið á smjörpappír, setjið plastfilmu yfir og geymið í ísskáp eða frysti í 30 mín.

Döðlurnar gefa kexinu sætt bragð.
Döðlurnar gefa kexinu sætt bragð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert