Hérna kemur uppskrift af geggjuðum Oreo-eftirrétt sem er fáránlega einfalt að búa til. Enginn bakstur, ekkert uppvask, ekkert vesen. Þessi eftirréttur slær í gegn. Uppskriftin kemur af heimasíðunni PickyPalate.com.
Hráefni
- 450 grömm Oreo-kex
- 5 bollar stórir sykurpúðar
- 4 matskeiðar smjör
Aðferð
- Settu Oreo-kexið í blandara þar til það verður að mylsnu.
- Bræddu sykurpúðana og smjör í örbylgjuofni, í um 1-2 mínútur. Taktu blönduna út úr örbylgjuofninum og bættu kexinu saman við.
- Hrærðu vel og settu blönduna í ferkantað bökunarform sem hefur verið þakið með álpappír. Láttu blönduna harðna í um tíu mínútur.
- Taktu sykurpúðablönduna svo úr forminu og skerðu í bita, gerir um níu bita.
Svona lítur hráefnið út áður en því er blandað saman.
www.picky-palate.com