Bláberjaterta með hvítu súkkulaði

Tertan girnilega inniheldur hvítt súkkulaði.
Tertan girnilega inniheldur hvítt súkkulaði. www.alberteldar.com

„Óskaplega bragðgóð og mjúk,“ segir Albert Eiríksson um tertuna sem hann bakaði fyrir þjóðhátíðardaginn. „Við megum ekki gleyma hvíta súkkulaðinu, það er gott líka. Já, og það hverfur líka úr súkkulaðiskúffunni minni,“ skrifar Abert á matarbloggi sínu Albert Eldar áður en hann deilir þessari guðdómlegu uppskrift með lesendum sínum.

Hráefni

Botn:

  • 1 pk Graham kex
  • 50 g smjör, brætt
  • 3 msk olía
  • 1 tsk sykur
  • 200 g hvítt súkkulaði, brætt
  • 1/2 tsk salt

Fylling:

  • 1 ds rjómaostur
  • 1 msk sykur
  • 1/3 b rjómi
  • 1 egg
  • 2 tsk vanilla
  • 2 b (frosin) bláber

Aðferð

Botn: Myljið kexið (t.d. í matvinnsluvél) og bætið saman við það smjöri, olíu, sykri, súkkulaði og salti. Blandið vel saman og þjappið því í kringlótt form (og líka upp með hliðunum). Kælið á meðan fyllingin er undirbúin.

Fylling: Þeytið í hrærivél rjómaost og sykur. Bætið við rjóma, eggi og vanillu og hrærið vel saman. Hellið yfir botninn og dreifið 2/3 af bláberjunum yfir. Bakið við 150° í rúmlega klst. Þegar kakan er bökuð er restinni af bláberjunum dreift jafnt yfir og þeim ýtt aðeins ofan í. Tertan verður að ná stofuhita áður en hún er borin á borð því annars rennur hún út um allt. Enn betra er að kæla hana og bera þannig fram.

Silkimjúk bláberjaterta.
Silkimjúk bláberjaterta. www.alberteldar.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert