Ofureinfalt bananasnakk

Meinhollt bananasnakk.
Meinhollt bananasnakk. cookboum.net

Hérna kemur uppskrift að ofureinföldu og hollu bananasnakki sem bragðast til dæmis vel með rúsínum og hnetum. Uppskriftin kemur af CookBoum.net

  1. Sneiddu banana í þunnar sneiðar (um það bil þrjá millimetra) og penslaðu þá með sítrónusafa og smá vatni.
  2. Stráðu smá kanil og kosher-salti yfir sneiðarnar og bakaðu við 120°C í um 90 mínútur. Snúðu þá sneiðunum við og bakaðu í 30 mínútur til viðbótar.
  3. Láttu sneiðarnar kólna áður en þú borðar þær, þannig verða þær stökkar.

Þetta bananasnakk bragðast guðdómlega með smá hnetusmjöri.

Bananarnir eru penslaðir með sítrónusafa.
Bananarnir eru penslaðir með sítrónusafa. cookboum.net
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert