Silkimjúkur kókos- og mangóþeytingur

Hráefnið sem fer í silkimjúka þeytinginn.
Hráefnið sem fer í silkimjúka þeytinginn. Facebook @Gló

Hérna kemur uppskrift af gómsætum og meinhollum þeyting með mangó, kókos og chifræum. Þeytinginn tekur örskammastund að undirbúa og hann hentar vel sem morgunmatur. Uppskriftin kemur af Facebook-síðu Gló í Fákafeni.

Hráefni:

  • eitt þroskað mangó
  • 2 bitar frosið mangó
  • ein dós kókosmjólk
  • vanilluduft á hnífsoddi
  • dass af MCT olíu
  • 2 msk Chiafræ

Aðferð:
„Allt sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt. Chiafræin sett síðust og rétt blönduð með. Allt sett í fallega krukku og inn í kæli til að stífna. Njótið vel! Algjört lostæti,“ segir á Facbook Gló.

Mangóið gefur þeytingnum sætt bragð.
Mangóið gefur þeytingnum sætt bragð. Arnaldur Halldórsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert