Svakanaggar slógu um sig

Svakanaggar slógu um sig í Grillsumrinu mikla. Þeir eru fimm ástríðufullir grillarar sem finnst ekki leiðinlegt að koma saman og grilla eitthvað gott saman. Þeir heita Siggeir, Otti, Sigurður, Guðmundur og Viðar og kíkti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir í garðinn til þeirra. Þeir grilluðu tvo girnilega rétti:

Aðalrétturinn:

„Surf and Turf“ nautaribeye frá Skare marinerað upp úr CajP grillolíu með tígrisrækjum frá Sælkerafisk í hvítlauks, chili mauki frá Blue Dragon. Meðlætið er grillað grænmeti og Patak’s naanbrauð með eggaldin sósu.

Efitrrétturinn:

Grillaður ferskur ananas með ferskum Driscoll’s berjum og heitri Dumle og Milka Oreo súkkulaðisósu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert