Rosaleg sælgætiskaka með karamellu

Þessi kaka er svakalega „djúsí“.
Þessi kaka er svakalega „djúsí“. Ljósmynd/ grgs.is

„Þessi ljúffenga sælgætiskaka var í eftirrétt í einu matarboði sem ég hélt á dögunum, gerð á degi þar sem sykurlöngunin var í einhverju sögulegu hámarki. Það dylst engum að kakan er bomba, en góð er hún…meira að segja hættulega góð,“ skrifar Berglind á vefinn Gulur Rauður Grænn og Salt áður en hún deilir með lesendum uppskrift af rosalegri Rice Krispies-köku með karamellu. 

Botn
100 g suðusúkkulaði
80 g smjör
3 msk sýróp
150 g rjómakúlur
200 g Rice Krispies

  1. Bræðið smjör, súkkulaði, sýróp í potti við vægan hita þar til allt hefur blandast saman og bráðnað.
  2. Bætið því næst Rice Krispies saman við og blandið vel saman. Setjið í form og kælið í um klukkustund.

Fylling
250 ml rjómi
1 poki karamellu Nóa Kropp

  1. Setjið Nóa kroppið í poka og berjið í hann þannig að það myljist gróflega. Bætið saman við þeyttan rjómann.

Marengs
100 g sykur
100 g púðursykur
3 eggjahvítur
1 Risa Hraun, saxað smátt

  1. Hrærið sykri, púðursykri og eggjum saman í dágóðan tíma (5-10 mínútur) þar til marengsinn er orðinn stífþeyttur.
  2. Blandið grófsöxuðu Hrauni saman við með sleif. Setjið marengs á smjörpappír og bakið í 150°c heitum ofni í um 30-40 mínútur.

Súkkulaðikaramellusósa
1 poki Dumble karamellur, með dökku súkkulaði
2-3 msk rjómi

  1. Setjið karamellur og rjóma saman í pott og bræðið saman við vægan hita. Setjið kökuna saman með því að láta fyrst Rice Krispies botninn, því næst rjómafyllinguna, svo marengs. Setjið því næst ávexti að eigin vali yfir marengsinn ásamt súkkulaðikaramellusósu.
Botn kökunnar eru úr Rice Krispies.
Botn kökunnar eru úr Rice Krispies.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert