Fylltar paprikur

Fylltar paprikur eru réttur sem er vinsæll hjá öllum kynslóðum. Þetta er sígild fylling með hakki og hrísgrjónum sem að við gerum bragðmeiri með tómatasósu, kryddjurtum og parmesanosti.

Byrjið á því að gera tómatasósuna:

  • 1 dós tómatar
  • 1 laukur saxaður
  • 2 vænir hvítlauksgeirar
  • nokkur basilblöð
  • óreganó, ferskt eða þurrkað
  • skvetta af hvítvíni ef þið eigið það til

Mýkið lauk og hvítlauk í olíu íu á pönnu. Bætið tómötunum út á pönnuna og leyfið þeim að malla í smástund ásamt skvettu af hvítvíni. Bætið kryddjurtunum saman við. Látið malla áfram þar til að tómatarnir maukast þegar ýtt er á þá með skeið.

Fyllingin:

  • 2 dl hrísgrjón
  • 500 g nautahakk
  • 1 laukur saxaður
  • 3 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 1 paprika, söxuð
  • 1 búnt steinselja, söxuð fínt
  • 1 lúka rifinn parmesanostur
  • 1/3 Fetakubbur, skorinn í litla teninga
  • 1 dl af tómatasósunni
  • salt og pipar

fylltar paprikur

Setjið 2 dl af hrísgrjónum í pott og sjóðið.

Hitið olíu á pönnu og mýkið lauk, hvítlauk og papriku. Bætið kjötinu út á, hækkið hitann aðeins og brúnið í 5 mínútur eða svo. Bætið nú steinseljunni út á og hrærið vel saman. Bætið næst tómatasósunni saman við og hrísgrjónunum. Takið af hitanum og hrærið parmesanostinum og fetaostinum saman við. Bragðið til með salti og pipar.

Skerið paprikur í tvennt og hreinsið fræ og ljósa ávaxtakjötið innan úr þeim. Setjið afganginn af tómatasósunni í fat. Fyllið paprikurnar vel af kjötblöndunni og raðið ofan í fatið.

Setjið álpappír ofan á fatið og eldið í 45 mínútur í 200 gráðu heitum ofni. Takið álpappírinn af og eldið í 30 mínútur til viðbótar.

Fleiri uppskriftir með papriku finnið þið með því að smella hér. 

Uppskrift: vinotek.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert