„Hér er á ferðinni einfaldur og ljúfur penne pastaréttur með kjúklingi, sólþurrkuðum tómötum og bræddum mozzarellaosti í hvítlauksrjómasósu,“ segir Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt.
Kjúklingapasta með mozzarella og sólþurrkuðum tómötum
- 3 hvítlauksrif, pressuð
- 1 krukka sólþurrkaðir tómatar
- 500 g kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
- salt
- paprikuduft
- 240 ml matreiðslurjómi
- 110 g rifinn mozzarellaostur
- 250 g pasta, t.d. penne pasta
- 1 msk þurrkað basil
- ¼ tsk rauðar piparflögur
- sjávarsalt
Aðferð
- Eldið pastað samkvæmt leiðbeiningum og þegar það er tilbúið geymið 120 millilítra af pastavatninu þar til síðar.
- Takið sólþurrkuðu tómatana úr olíunni og steikið á pönnu ásamt hvítlauknum í um 1 mínútu. Takið af pönnunni.
- Skerið kjúklingabringurnar í litla bita kryddið með paprikukryddi og salti og steikið á pönnunni. Skerið sólþurrkuðu tómatana í litla bita og bætið þeim saman við kjúklinginn.
- Setjið rjómann og mozzarellaostinn saman við og hitið að suðu. Lækkið þá hitann og hrærið stöðugt í eða þar til osturinn hefur bráðnað. Þynnið sósuna með því að bæta pastavatninu saman við.
- Bætið pasta út á pönnunna og kryddið með basil, chilíflögum og saltið að eigin smekk. Berið fram með salati og góðu brauði.