Heimsins besti hafragrautur

Ofnbakaður hafragrautur með hindberjum og kókosmjólk.
Ofnbakaður hafragrautur með hindberjum og kókosmjólk. Ljósmynd/grgs.is

„Það er holl og góð leið að starta deginum með hafragraut og undanfarið hafa komið hinar ýmsu útgáfur af honum sem gleður grautamanneskjulover eins og mig. Uppskriftin kemur frá matarbloggurunum á GkStories en sú síða er uppfull af dásamlegum og hollum uppskriftum. Þessi grautur er eins og besti eftirréttur og svei mér þá ef hann væri ekki bara góður sem slíkur með vanilluís eða rjóma,“ segir Berg­lind Guðmunds­dótt­ir hjúkrunarfræðingur og mat­ar­blogg­ari á Gulur, rauður, grænn og salt um ofnbakaðan hafragraut eð hindberjum og kókosmjólk. 

Ofnbakaður hafragrautur með hindberjum og kókosmjólk

  • 180 g haframjöl (ég notaði tröllahafra)
  • 500 g frosin hindber (eða ber að eigin vali)
  • 2 egg
  • 150 ml kókosmjólk, t.d. frá Blue dragon
  • 250 ml mjólk
  • 1 tsk vanilludropar
  • 1 tsk kanill
  • klípa sjávarsalt
  • ½ bolli graskersfræ
  • ½ bolli sólblómafræ
  • ½ bolli möndlur, gróflega saxaðar
  • 2 msk kókosolía, við stofuhita
  • 2 msk hunang eða hlynsýróp

Aðferð

  1. Setjið berin í ofnfast mót.
  2. Blandið haframjöli, lyftidufti, kryddum og salti. Blandið saman og hellið yfir berin.
  3. Hrærið því næst eggjum, kókosmjólk, mjólk og vanilludropum vel saman. Hellið yfir hafrana og berin.
  4. Gerið stökku fræblönduna með því að setja möndlur og fræ í skál og blandið kókosolíunni saman við og því næst hlynsýrópinu. Dreifið því yfir allt og bakið í um 30 mínútur við 180°c (gott er að hafa álpappír yfir þannig að blandan brenni ekki og taka hann af síðustu 5-10 mínúturnar).
Þessi grautur er eins og besti eftirréttur.
Þessi grautur er eins og besti eftirréttur. Ljósmynd/grgs.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert