Krúttlegar hrákökur fyrir krakka

Hollt og gott.
Hollt og gott. heilsuhusid.is

„Engifer-hrákökur með bleiku rauðrófukremi, hollar og krúttlegar fyrir litla putta,“ segir á heimsíðu Heilsuhússins. Meðfylgjandi er uppskrift af þessum gómsætu kökum.

Hráefni
Gerir átta stórar kökur

Deig

  •             1 dl      hafrar
  •             1 dl      möndlur frá Sólgæti
  •             1 stk     Sonnentor vanillustöng
  •             2-3 stk  sykraðir engiferbitar frá Sólgæti
  •             1 msk   hlynsýróp (má sleppa)
  •             6-8 stk  döðlur frá Sólgæti
  •             1 msk   kakónibbur frá Sólgæti
  •             1 msk   goji-ber frá Sólgæti

Aðferð:

Allt nema döðlurnar er sett í matvinnsluvél og blandað vel saman í nokkrar mín, bætið síðan við döðlunum þar til að blandan verður að þéttu deigi sem helst saman þegar það er pressað saman. Deigið er annað hvort mótað í litlar kúlur eða ýtt í gegnum mót. Setjið inn í frystinn á meðan kremið er búið til.

Krem

  •             2 msk   kakósmjör eða kókosolía frá Biona
  •             2 msk   Biotta rauðrófusafi
  •             1 msk   hlynsýróp

Aðferð:

Kakósmjörið er brætt, annað hvort í örbylgjuofni eða í potti, passið að það brenni ekki. Bætið við rauðrófusafanum og hlynsýrópinu og hrærið mjög vel, þar til að blandan kólnar aðeins og verður pínu þykk. Takið kökurnar úr frystinum og dýfið í kremið, eins mikið og þið viljið á hverja köku, setjið kökurnar með kreminu inn í frysti í 5 mín og njótið. Kökurnar geymast inn í ísskáp í u.þ.b. eina viku.

Goji-ber eru meinholl.
Goji-ber eru meinholl.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert