Haustsúpa mæðgnanna

Vermandi haustsúpa Sollu og Hildar.
Vermandi haustsúpa Sollu og Hildar.

„Haustsúpan verður til í allskonar útgáfum. Bara eftir því hvaða grænmeti er til í ísskápnum, eða lítur best og ferskast út í búðinni þann daginn. Í rauninni er hægt að nota hvaða grænmeti sem er. Núna eru litlar bragðmiklar gulrætur, gulrófur, kartöflur og hvítkál í miklu uppáhaldi hjá okkur. Hvítkálið kemur sérstaklega á óvart, strimlarnir eru svo mjúkir undir tönn í súpunni. 

Við notuðum maukaða tómata úr krukku sem grunn og gott lífrænt krydd; timían, rósmarín, þurrkaðan hvítlauk og cayenne pipar. Og svo bara fullt af grænmeti og örlítið af linsubaunum til að þykkja. Af því að engin olía er notuð við matreiðsluna finnst okkur gott að bera súpuna fram með jómfrúar ólífuolíu sem við blöndum með smá þurrkuðu kryddi, þessu geta matargestir síðan skvett útá eftir smekk, eða dýft nýbökuðu brauði í olíuna,“ segja mæðgurnar Solla Eiríks og Hildur Ársælsdóttir á bloggsíðu sinni. Á dögunum gáfu þær út sína fyrstu matreiðslubók saman sem ber nafnið Himneskt að njóta.

Vermandi haustsúpa

600 ml maukaðir tómatar
600 ml vatn 
5-6 kartöflur 
3-4 gulrætur 
1/2 lítill hvítkálshaus 
1/2 paprika 
1/2 meðalstór rófa 
5-6 hvítlauksrif, heil 
50 g rauðar linsur
1 tsk þurrkað timían (helst lífrænt...við finnum bragðmuninn, í alvöru!)
1 tsk rósmarín (helst lífrænt)
1 tsk þurrkaður hvítlaukur (helst lífrænn) 
1 tsk cayenne pipar 
1-2 tsk sjávarsaltflögur 
+ ferskt krydd ef þið eigið, t.d. timían stöngull eða rósamarín grein.

Aðferð

  1. Setjið maukaða tómata og vatn í pott.
  2. Skerið grænmetið í passlega stóra munnbita og hafið þá þunna, setjið út í pottinn.
  3. Bætið linsunum útí.
  4. Kryddið og látið suðuna koma upp.
  5. Látið malla í um 30-40 mín.
  6. Bragðið til með salt og nýmöluðum svörtum pipar og berið fram með kryddolíu.

Kryddolía

1 dl jómfrúar ólífuolía 
1 tsk rósmarín 
1 tsk timían 
1 tsk þurrkaður hvítlaukur 
1/2 tsk sjávarsaltflögur

Blandið saman í krukku og setjið 1 msk út á hvern skammt af súpu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert