Geggjaðir réttir úr afgöngum: Klúbbsamloka og salat

Óskar Finnsson kennir nú Íslendingum að elda góða og auðvelda rétti í nýjum þætti á mbl.is. Þar sýnir hann á fimm mínútum hvernig má gera heimilismat á stuttum tíma, mat sem allir í fjölskyldunni munu borða. Óskar vill að fólk eldi ríflega, því að nýta má afganga í dásamlega rétti og slá þá tvær, ef ekki þrjár, flugur í einu höggi. Í fyrsta þættinum eldaði Óskar kjúklingabringur fylltar með gorgonzola og vafðar í parmaskinku, en þá uppskrift má finna hér á mbl.is. Hér eru tvær aukauppskriftir úr afgöngum og eru þær ekki af verri endanum. Klúbbsamloka og G&P-salat að hætti kokksins mun slá í gegn á blautum og köldum mánudegi, því getum við lofað. Hægt er að fylgjast með á facebook og instagram undir nafninu korter í kvöldmat.

Klúbbsamloka Óskars Finnssonar.
Klúbbsamloka Óskars Finnssonar. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Klúbbsamloka

Klassískar klúbbsamlokur má finna alls staðar, en þær eru framreiddar á búllum jafnt sem fimm stjörnu hótelum. Uppistaðan er kjúklingur, beikon, salat, tómatar og majones en hér er notast við afganga, kjúklingabringur með gorgonzola, vafnar í parmaskinku.

Uppskrift

kjúklingabringa vafin í parmaskinku, hituð smá í örbylgju

salatblað

tómatur skorin í sneiðar

majónes

baguette-brauð eða ristað franskbrauð

kartöflur (hitaðar í örbylgju)

Takið brauð og smyrjið með majónesi, raðið saman skornum kjúklingnum, tómötum, salatblaði og hituðum kartöflum. 

Kjúklingasalat.
Kjúklingasalat. mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Salat

Tilvalið er að búa til gott salat úr afgöngum. Aðferðin er frjáls en uppistaðan er afgangar af parmakjúklingi og kartöflum.

Uppskrift

rúkóla eða annað salat

tómatar

kjúklingur

kartöflur

Bæta má við því sem til er í ísskáp, t.d. avókadó, papriku eða öðru grænmeti.

Dressing

sýrður rjómi

safi úr ½ sítrónu

gorgonzola ostur

Blandið þessu vel saman. Má krydda eftir smekk, t.d. með smá karríi eða teskeið af dijon-sinnepi til að fá allt annað bragð.

Sjá líka hér: Parma­skinku-kjúk­linga­bring­ur

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert