Marengstoppar með Þristum

Marengstoppar.
Marengstoppar. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir

„Það er orðin hefð hjá mér að baka þessa góðu marengstoppa fyrir jólin og það kemur skemmtilega á óvart að fylla marengsinn með Þristasúkkulaði. Skemmtilegt og einfalt að baka og gaman að leyfa börnunum að taka þátt. Slær alltaf í gegn,“ segir Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur og matarbloggari á Gulur, rauður, grænn og salt. 

Þristatoppar 


4 stk eggjahvítur
210 gr púðursykur
1 poki þristar, saxaðir örsmátt

  1. Þeytið eggjahvítur og púðursykur vel og lengi þar til maregns hefur myndast eða í ca. 5-10 mínútur.
  2. Þristurinn er settur varlega út í með sleif og látið á plötu með teskeið.
  3. Bakist við 125°c í 30-40mín.
Marengstoppar með Þristum.
Marengstoppar með Þristum. Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert